Uppfærð viðmið til afreksverðlauna Sörla

Afreksverðlaun 

Hér að neðan eru viðmiðunarreglur til verðlauna eftir yfirferð og samþykkt stjórnar 12.04.2024

1. Hlutlægt mat

Útreikningur stiga

Stig fyrir þátttöku í mótum eru reiknuð í samræmi styrkleika þeirra. Vægi móta er mismunandi og hafa Lands-, heimsmeistara-, Íslands- og Norðurlandamót hæst vægi. Gert er ráð fyrir að vægi móta sé eins frá ári til árs en valnefnd geti breytt þessu m.t.t. breytinga á styrkleika móta.

Til stiga telst besti árangur á 6 löglegum mótum. Árangur í  innanfélagsmótum, sem ekki lúta reglum Landssambands hestamannafélaga, telst ekki með nema sem hluti af huglægu mati.  Árangur í Meistaradeild telur ekki til stiga. Ástæðan er sú að knapar eru valdir til keppni í Meistaradeild en geta ekki unnið sér inn sæti í henni. Annað á við um keppni í meistaradeildum ungmenna og æskunnar, enda eru þær opnar öllum.

Það er á ábyrgð knapa og forráðamanna að skila inn upplýsingum um árangur. Upplýsingum skal skila á eyðublöðum sem eru aðgengileg á heimasíðu Sörla.

Styrkleikar móta

Valnefnd mun flokka mót eftir styrkleika. Flokkar verða fjórir talsins.
·         Landsmót og heimsmeistaramót, vægi 5.
·         Íslandsmót og Norðurlandamót, vægi 3.
·         WR mót, stærri og/eða sterk lögleg mót - 300 skráningar eða fleiri, vægi 1.
·         Minni lögleg mót, vægi 0,5.

Stig fyrir sæti.
1.      sæti gefur 12 stig
2.      sæti gefur 10 stig
3.      sæti gefur 8 stig
4.      sæti gefur 7 stig
5.      sæti gefur 6 stig
6.      sæti gefur 5 stig
7.      sæti gefur 4 stig
8.      sæti gefur 3 stig
9.      sæti gefur 2 stig
10.  sæti gefur 1 stig

Ekki verður mismunandi vægi á einstökum greinum. Komi til þess að tveir knapar séu jafnir að stigum mun huglægi þáttur matsins geta ráðið úrslitum. Í þessu sambandi er þó lagt til að á Landsmóti vegi árangur í A og B flokkum þyngst.

Ýmis atriði

Sæti í úrslitum telur í stigagjöf en ekki sæti í forkeppni. Á þetta aðeins við þegar knapi keppir á hesti sem hann kom í úrslit.

Keppandi í fullorðins flokkum skal taka fram hvort hann safnar stigum í opnum flokki eða í flokki áhugamanna.

Knapar safna stigum í sínum flokki og einnig þegar þeir keppa í hærri styrkleikaflokki. Knapar í meistaraflokki safna einungis stigum í sterkasta flokki á hverju móti.

Stig í 1. flokks greinum í meistaraflokki (F2,V2,T3 og T4) telja hálft á við stig í meistaraflokks greinum (T1, V1, F1,T2).

Komi knapi tveimur hestum eða fleiri  í úrslit/verðlaunasæti  þá telja stig fyrir þann hest sem hann keppir á í úrslitum.

Í greinum þar sem sérstök úrslitakeppni fer ekki fram telur besti árangur knapa á einum hesti til stiga. Þetta á við um skeiðgreinar, fimikeppni og aðrar greinar  án sérstakrar úrslitakeppni.

Hafnarfjarðameistartitill gefur 5 stig til viðbótar öðrum stigum.
Milliriðill á landsmóti gefur 5 stig til viðbótar öðrum stigum.

Titlar samanlagðra sigurvegara og stigahæstu knapa í æskulýðsflokkum skila 12 stigum eins og 1. sæti almennt gerir.

 

 2. Huglægt mat

Auk stiga verður huglægt mat lagt á árangur og hæfi keppenda. Huglægi þátturinn er vandmeðfarinn enda getur hann ráðið úrslitum um val. Stjórn Sörla skal gæta þessa.

Einstakur árangur s.s heimsmeistaratitill,  heimsmet,  Landsmótssigur í A eða B flokki getur ráðið úrslitum við val og vegið þyngra en stigagjöf.

Gerð er krafa til þess að íþróttamaður sé góð fyrirmynd, innan vallar sem utan.

Dæmi um þætti sem hafa áhrif á huglægt mat:

Jákvætt

·         Knapi kemur fleiri en einum hesti í úrslit.
·         Að komast í landslið.
·         Góð framkoma utan sem innan vallar.
·         Árangur í keppni fyrir hönd annars félags.  

Neikvætt

·         Óíþróttamannsleg framkoma.

Í huglægu mati er tekið tillit til áminningar fyrir grófa reiðmennsku og óíþróttamannslega framkomu. Rauð spjöld sem gefin eru vegna misheppnaðra sýninga telja ekki til frádráttar. Dæmi um slíkt er þegar skeifa dettur undan, hestur fer úr braut og annað sem rekja má til mistaka í sýningu.

Þær viðurkenningar sem Sörli mun veita eru eftirfarandi:

·         Íþróttakarl Sörla
·         Íþróttakona Sörla
·         Knapi Sörla í áhugamannaflokki
·         Knapi Sörla í ungmennaflokki
·         Knapi Sörla í unglingaflokki
·         Knapi Sörla í barnaflokki

Að auki verða veitt 2. og 3. verðlaun fyrir góðan árangur í ungmenna-, unglinga- og barnaflokki sem og hin árlegu verðlaun Æskulýðsnefndar og stjórnar fyrir efnilegasta ungmennið og áhugasamasta barnið/unglinginn