Sækið gæðingana ykkar, dustið af reiðtygjunum og takið þátt í einu af síðustu mótum tímabilsins - Hinu glæsilega móti Sörla - GÆÐINGAVEISLUNNI !!!
Peningaverðlaun í flokkum fullorðinna og glæsileg verðlaun í yngri flokkum – enginn verðlaunahafi fer tómhentur heim úr góðri gæðingaveislu.
29.–31. ágúst á Hraunhamarsvellinum
Skráning er hafin á Sportfeng og stendur til 25. ágúst.
Keppt verður í:
A- og B-flokki – opinn flokkur (gæðingaflokkur 1) og áhugamenn (gæðingaflokkur 2)
A- og B-flokki ungmenna
Unglingaflokki og barnaflokki gæðinga
100m skeiði
Gæðingatölti fullorðinna(opinn og áhugamenn) og ungmenna
Skráningargjald:
• Börn & unglingar: 7.000 kr.
• Aðrir flokkar: 8.500 kr.
Greitt með millifærslu? Sendið kvittun á motanefnd@sorli.is til að staðfesta skráningu.
Fyrirspurnir & afskráningar: motanefnd@sorli.is
Mundu: Eftir að skráningarfresti líkur tvöfaldast gjaldið – og eftir að ráslistar eru gefnir út verður ekki hægt að bæta við keppendum á mótið.
Við lofum góðri stemningu, mögnuðum keppnisanda og glæsilegustu mótsaðstöðu sem völ er á.
Ekki missa af þessu tækifæri – sjáumst á vellinum!
Mótanefnd Sörla