Upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsfélaga

Forvarnir 

Hér að neðan er slóð á upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsfélaga og samtaka sem ætlað er að minna á ábyrgðina sem við berum öll saman þegar kemur að því að koma í veg fyrir ofbeldi. 

Í sumar eru ýmsar samkomur, viðburðir og mannamót þar sem börn koma að.  Því er mikilvægt að öll þau sem koma að skipulagningu og framkvæmd íþrótta- og æskulýðsstarfs séu upplýst um það til hvers er ætlast af þeim varðandi hegðun og framkomu. Þá er einnig mikilvægt að þekkja einkenni ofbeldis og vita hvert skal leita ef vaknar grunur um að barn hafi orðið fyrir ofbeldi. Við minnum á að leita má ráða eða leiðsagnar hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs um samskipti.

Í upplýsingabréfinu eru gagnlegir hlekkir með fræðslu gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, gátlista varðandi nýráðningu starfsfólks og sjálfboðaliða ásamt leiðbeiningum varðandi öflun upplýsinga úr sakaskrá. Þar er einnig að finna hlekk á samræmda viðbragðsáætlun íþrótta- og æskulýðsstarfs. 

 Hér er hægt að sjá bréfið í heild sinni 

Ætíð á að tilkynna til 112, og/eða barnaverndarþjónustu og lögreglu ef vaknar grunur um brot gegn barni.  

Það er gott fyrir alla að kynna sér þessar upplýsingar.