Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust við Kaldárselsveg þann 9. desember frá klukkan 09:00 til klukkan 15:00. Sjá nánar á heimasíðu Veitna www.veitur.is
Til að lágmarka hættu á slysum eða tjóni þegar heita vatnið kemst á aftur er mælt með að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana. Húseigendur eru hvattir til að yfirfara innanhússkerfi sín og tryggja að allt sé í lagi áður en vatnsflæðið hefst að nýju.
Kær kveðja,
starfsfólk Veitna