Miðasala í fullum gangi - Skírdagshappdrætti Sörla 2024 - Vinningaskrá

Allir að kaupa miða 

Miðasala í happdrætti félagsins er í fullum gangi.

Skoðið vinningaskránna og sjáið alla þessa glæsilegu vinninga sem ýmis fyrirtæki og einstaklingar styrktu okkur með.

Hægt er að kaupa miða með því að senda póst á sorli@sorli.is og óska eftir miðum, vinsamlegast skrifið nafn, kennitölu, gsm númer og fjölda miða, við sendum til baka mynd af miðunum ykkar og stofnum kröfu í heimabanka fyrir miðunum.

Þetta er okkar árlega fjáröflun og vonumst við til þess að félagsmenn og velunnarar félagsins kaupi sér allir miða því miði er möguleiki.

Vinningarnir eru stórglæsilegir að vanda, fullt af folatollum undir glæsilega hesta og ýmsir aðrir flottir vinningar sem allir vilja.

Við munum einnig verða með frekari kynningu á stóðhestunum og styrktaraðilum næstu daga þannig að þið skulið fylgjast vel með.

Áfram Sörli.