KVENNAREIÐ FÖSTUDAGINN 26. apríl 2024

Endalaus gleði 

bjóðum við Sörlakonur heim. Félagið okkar er 80 ára í ár og því ætlum við að hafa mikla gleði á Sörlastöðum.

Takið föstudagskvöldið 26. apríl nk. frá því þá verður gleði á Sörlastöðum. Matur, gleði og Herbert Guðmundsson mætir og tekur lagið!!

Endilega skráið ykkur með því að senda póst á kvennadeild@sorli.is til að skrá sig og greiða þarf 3.700 kr. inn á reikning 0544-26-030963, kt. 640269-6509. Greiðsla þarf að berast í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 núna á miðvikudaginn 24. apríl nk.

Við bjóðum velkomnar til okkar konur úr Fáki, Spretti, Herði, Sóta, Brimfaxa og Mána í raun eru allar 18 ára og eldri hestakonur velkomnar.

Við Sörlakonur munum að ríða á móti konum úr öðrum félögum, hittumst við Sörlastaði kl 16:45. Konur sem vilja ríða með okkur á móts við hinar eru velkomnar og stefnum á að hóparnir hittist í Gjármótum kl 18:00 og ríðum svo saman á Sörlastaði, þar sem verður matur og gleði fram eftir kvöldi.

Konur eru einnig velkomnar þó þær komi akandi.

Kvennadeild Sörla