Knapamerki 2 og 3 - Haust 2023

Haust 2023 

Knapamerki
Knapamerkjabækurnar fimm

Kennd verða knapamerki 2 og 3 að þessu sinni ef næg þátttaka næst í hópana (lágmark 5 iðkendur í hóp).

Einnig viljum við kanna áhugan fyrir knapamerkjum 4 og 5.

Knapamerkin eru markvisst og stigskipt nám í hestamennsku. Námið hentar öllum byrjendum sem lengra komnum. Námið er skipulagt þar sem farið er yfir nánast alla þætti hestamennskunnar og lagður grunnur að árangri og öryggi. Á fyrsta stigi er lögð áhersla á grunnatriði, atferli, eðli og hegðun hesta, knapinn lærir að umgangast hestinn af öryggi. Farið er yfir gangtegundir, ásetu og taumhald. Stig af stigi aukast kröfurnar jafnt og þétt og námsefnið verður viðameira. Á 5. og síðasta stiginu á knapinn að hafa mjög gott vald á gangtegundum, mismunandi ásetum, fjölbreyttum fimiæfingum og skilja hvernig á að byggja upp og þjálfa reiðhest. 5. stigið leggur grunn að því að knapinn geti lagt fyrir sig frekar nám í tamningum og þjálfun hesta. 

Knapamerki 2
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið Knapamerki 1.
13 verklegar reiðtímar og 6 bóklegir tímar.
Bókleg kennsla hefst 12. sept - 29. sept, kennt verður á þriðjudögum og föstudögum kl 16:00 - 17:00
Verklega kennslan hefst 3. okt -14. nóv. Kennt er á þriðjudögum 16:00-18:00 og föstudögum 16:00-18:00
Á eftirfarandi dögum: 3. okt, 6. okt, 10. okt, 13. okt, 17. okt. 20. okt, 24. okt, 27. okt, 31. okt, 3. nóv, 7. nóv, 10. nóv og 14. nóv yrði verklegt próf.
Verð 18 ára og yngri 54.000 kr
Verð 19 ára og eldri 66.000 kr

Knapamerki 3
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið Knapamerki 2.
20 verklegar reiðtímar og 7 bóklegir tímar.
Bókleg kennsla hefst 12. sept - 3. okt, kennt verður á þriðjudögum og föstudögum kl 17:00 – 18: 00.
Verklega kennslan hefst 6. okt -19. des. Kennt er á þriðjudögum 18: 00-20:00 og föstudögum kl: 18:00 – 20:00
Á eftirfarandi dögum: 6. okt, 10. okt, 13. okt, 17. okt, 20. okt. 24. okt, 27. okt, 31. okt, 3. nóv, 7. nóv, 10. nóv, 14.nóv, 17. nóv, 21. nóv, 24. nóv, 5. des, 8. des, 12. des, 15 des og 19. des yrði verklegt próf.
Verð 18 ára og yngri 77.000 kr
Verð 19 ára og eldri 97.000 kr

Kennari Knapamerkja 2 og 3 er Ásta Kara Sveinsdóttir.

Við verðum að forskrá og raða í hópa, áður en skránig fer fram í Sportabler, 18 ára og yngri geta nýta frístundastyrk, hægt er að skipta greiðslum. 19 ára og eldri skrá einnig í gegnum Sportabler og geta einnig skipt greiðslum.

Búið að loka fyrir skráningu - ef einhverjar fyrirspurnir eru sendið þá póst á sorli@sorli.is

Einnig viljum við kanna áhugan fyrir kennslu nú á haustönn á Knapamerkjum 4 og 5 til að sjá hvort það sé grundvöllur fyrir kennslu.
Tímasetningar eru ekki ákveðnar.
Verð Knapamerki 4 18 ára og yngri 87.000 kr
Verð Knapamerki 4 19 ára og eldri 109.000 kr
Verð Knapamerki 5 18 ára og yngri 92.000 kr
Verð Knapamerki 5 19 ára og eldri 116.000 kr

Verða ekki kennd vegna ónógra skráninga.

Þeir sem eru búnir með bóklega hlutann geta skráð sig bara í verklegt undir þessum skáningarflipum.

Einnig þeir sem hafa tekið þessi stig áður og vilja taka þau aftur, en þeir ganga ekki fyrir í hópana.