Keppnisakademía Sörla - Hæfileikamótun

Hefst í byrjun mars 

Keppnisakademía Sörla - Hæfileikamótun

Námskeiðið er ætlað knöpum í barna- unglinga- og ungmennaflokki sem hafa á undanförnum tveimur árum tekið þátt í að minnsta kosti 5 mótum, verið þátttakendur í meistaradeildum æskunnar eða ungmenna, eða tekið þátt á opnum mótum (millimót) undanfarið ár og stefna á keppni með hesta sína í vor.

Þar verður farið í undirbúning fyrir keppni, æfingar fyrir þær greinar sem stefnt er á og markvisst unnið að þeim markmiðum sem sett eru.

Iðkendur fá aðstoð við keppnisþáttöku og undirbúning, hjálp við markmiðasetningu og þjálfun og uppbyggingu keppnishestsins í aðdraganda keppnistímabils.

Námskeiðið er byggt upp á 2 helgarnámskeiðum þann 2-3 mars og 6-7 apríl og þar á eftir þann 22 apríl taka við vikulegir tímar ýmist í reiðhöllinni eða úti á velli fram til mánaðarmóta maí/júní.

Námskeiðið nær því yfir Hafnarfjarðarmeistaramót- og gæðingamót Sörla sem jafnframt er úrtaka fyrir LM.

Athugið að keppnisakademían er alveg frístandandi námskeið hugsað til viðbótar við önnur námskeið félagsins, og er ekki tengd Reiðmennskuæfingunum en iðkendum er að sjálfssögðu frjálst að skrá sig að uppfylltum skilyrðum (sjá afreksstefnu Hestamannafélagsins Sörla) og vera með á báðum námskeiðum.

Akademían er undir stjórn yfirþjálfara Hinriks Sigurðssonar og fleiri kennarar munu koma að kennslu á tímabilinu.

Námskeiðið er alls 12 reiðtímar (3 á hvoru helgarnámskeiði og 6 tímar í vikulegum æfingum frá 22 apríl) og það er takmarkað framboð af plássum á námskeiðið.

Verð 56.000 kr.

Opnað verður fyrir skráningu á mánudaginn 26. feb kl 14:00 í Keppnisakademíuna á Sportabler.
Vinsamlegast sendið lista yfir keppnisþátttöku síðastliðin 2 ár til yfirþjálfara.

Til að skrá yngri en 18 ára í Sportabler þarf að forráðamaður að stofna aðgang:
sportabler.com/shop/sorli
Velja tungumál
Innskrá í Sportabler
Nýskrá
Fylla út
Senda

Eftir að búið er að stofna sinn eigin aðgang þá er aftur farið inn á sportabler.com/shop/sorli valið námskeið fyrir iðkendur, hægt er að skipta greiðslum og nýta frístundastyrk.

Við hvetjum forráðamenn til þess að græja skráningarnar sem allra fyrst til þess að hægt sé að fá góða yfirsýn yfir fjölda iðkenda á vorönn.

Allar frekari upplýsinar hjá yfirþjálfara félagsins Hinna Sig, vinsamlegast sendið póst á hinriksigurdsson@gmail.com