Folaldasýning Sörla – laugardaginn 16. mars 2024

Dagskrá og rásröðun 

Folaldasýning Sörla verður haldin á morgun, 16.mars. 58 folöld eru skráð til leiks. Sýningin hefst kl 13:00 og vegna aðstöðu (leysis) okkar biðjum við eigendur að koma tímanlega með folöldin, í síðasta lagi 12.15.

Við tökum fyrst merfolöld inn og hestfolöld þurfa að bíða á kerrum á meðan. Allir vinna saman og gera þetta að auðveldu verki.

Dómarar eru Jón Vilmundarson og Friðrik Már Sigurðsson og munu þeir dæma eftir kerfinu hjá icefoal.

Folatollauppboðið er á sínum stað og höfum við fengið tolla undir frábæra gæðinga; Seiður frá Hólum, Glampi frá Skeiðháholti, Straumur frá Hríshóli 1, Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum, Húni frá Ragnheiðarstöðum, Vísir frá Kagaðarhóli og Örvar frá Gljúfri. Hvetjum áhorfendur og þátttakendur að nýta tækifærið og bjóða í þessa frábæru tolla.

Stebbukaffi verður á sínum stað.

Sjáumst hress !

Meðfylgjandi er dagskrá og ráslisti.

Dagskrá:

13:00:
Merfolöld
Hlé (30mín)
Hestfolöld
Hlé (20mín)
Uppboð folatolla
Úrslit merfolalda
Úrslit hestfolalda

Merfolöld:

1. Rós frá Þjórsárbakka
Litur: Brún
Faðir: Loki frá Selfossi
Móðir: Daniella frá Þjórsárbakka
Eigendur og ræktendur: Svandís Magnúsdóttir, Haraldur Þorgeirsson

2. Villimey frá Brekknakoti
Litur: Brúnstjörnótt með vagl
Faðir: Sigur frá Brekknakoti
Móðir: Dáð frá Steinskoti
Eigandi: Árni Arnþórsson
Ræktandi: Dagný Gunnarsdóttir

3. Bella frá Hafnarfirði
Litur: Brún
Faðir: Kolgrímur frá Breiðholti, Gbr
Móðir: Vigdís frá Hafnarfirði
Eigandi og ræktandi: Bryndís Snorradóttir

4. Arndís frá Síðu
Litur: Fífilbleik, blesótt
Faðir: Skýr frá Skálakoti
Móðir: Almadís frá Síðu
Eigandi og ræktandi: Viðar Jónsson

5. Dulúð frá Þorlákshöfn
Litur: Fífilbleik, kolótt
Faðir: Eldgígur frá Króki
Móðir: Harpa frá Stóra-Vatnshorni
Eigandi og ræktandi: Linda Steinunn Guðgeirsdóttir

6. Álfaborg frá Síðu
Litur: Rauðskjótt, glófext
Faðir: Þráinn frá Flagbjarnarholti
Móðir: Valborg frá Síðu
Eigendur og ræktendur: Steinunn Egilsdóttir, Viðar Jónsson

7. Draumey Rós frá Þorlákshöfn
Litur: Rauðstjörnótt
Faðir: Eldgígur frá Króki
Móðir: Brák frá Brúnum
Eigandi og ræktandi: Linda Steinunn Guðgeirsdóttir

8. Salóme frá Stuðlum
Litur: Rauðstjörnótt
Faðir: Dagur frá Austurási
Móðir: Hlökk frá Klömbrum
Eigandi og ræktandi: Bryndís Ösp Ólafsdóttir Bender

9. Ronja frá Þorlákshöfn
Litur: Brún
Faðir: Haukur frá Dufþaksholti
Móðir: Skellibjalla frá Króki
Eigandi og ræktandi: Hrefna Rún Olivers Óðinsdóttir

10. Efemía frá Þjórsárbakka
Litur: Rauðskjótt
Faðir: Ísak frá Þjórsárbakka
Móðir: Surtsey frá Þjórsárbakka
Eigandi og ræktandi: Svandís Magnúsdóttir

11. Hreyfing frá Kvíarhóli
Litur: Rauðtvístjörnótt
Faðir: Hringur frá Gunnarsstöðum
Móðir: Skör frá Kvíarhóli
Eigendur og ræktendur: Ingólfur Jónsson, Viðar Ingólfsson

12. Skjannadís frá Ásgeirsbrekku
Litur: Rauðslettuskjótt
Faðir: Stardal frá Stíghúsi
Móðir: Von frá Enni
Eigandi: Sunna Rós Sigurðardóttir
Ræktandi: Jóhann Ingi Haraldsson

13. Fiðla frá Syðri-Reykjum
Litur: Rauðblesótt
Faðir: Ari frá Votumýri
Móðir: Dimma frá Syðri Reykjum
Eigandi og ræktandi: Jón Valdimar Gunnbjörnsson

14. Atley frá Skeggjastöðum
Litur: Rauð
Faðir: Eldur frá Bjarghúsum
Móðir: Tekník frá Skeggjastöðum
Eigendur og ræktendur: Halldór Kristinn Guðjónsson, Erla Magnúsdóttir

15. Hringjadrottning frá Skeggjastöðum
Litur: Jarpblesótt, hringeygð
Faðir: Hringur frá Gunnarsstöðum
Móðir: Tign frá Skeggjastöðum
Eigendur og ræktendur: Halldór Kristinn Guðjónsson, Erla Magnúsdóttir

16. Rauðhetta frá Miklaholti
Litur: Ljósleirljós, skjótt með ægishjálm
Faðir: Þráinn frá Flagbjarnarholti
Móðir: Mjallhvít frá Heydölum
Eigendur og ræktendur: Lilja Kristjánsdóttir, Stefán Már Gunnlaugsson

17. Rökkurey frá Skeggjastöðum
Litur: Brúntvístjörnótt, hringeygð
Faðir: Lexus frá Vatnsleysu
Móðir: Gletta frá Hamrahóli
Eigendur og ræktendur: Halldór Kristinn Guðjónsson, Erla Magnúsdóttir

18. Nótt frá Framnesi
Litur: Brúnn
Faðir: Týr frá Miklagarði
Móðir: Perla frá Ytri Skeljabrekku
Eigandi og ræktandi: Ásbjörn Helgi Árnason

19. Aþena frá Lindarbæ
Litur: Brúnskjótt
Faðir: Haustar frá Lindarbæ
Móðir: Mist frá Ármóti
Eigendur og ræktendur: Finnbogi Aðalsteinsson, Elsa Jónsdóttir

20. Viðja frá Svignaskarði
Litur: Brún
Faðir: Veigar frá Skipaskaga
Móðir: Hugsýn frá Svignaskarði
Eigandi og ræktandi: Valdís Björk Guðmundsdóttir

21. Djásn frá Barði
Litur: Sótrauð
Faðir: Eldjárn frá Tjaldhólum
Móðir: Síbería frá Barði
Eigandi: Ólafur Þ. Kristjánsson
Ræktandi: Sigríður Klara Böðvarsdóttir

22. Fold frá Efsta-Seli
Litur: Brún
Faðir: Forkur frá Breiðabólsstað
Móðir: Fía frá Efsta-Seli
Eigandi: Ásbjörn Helgi Árnason
Ræktandi: Daníel Jónsson

23. Líf frá Svignaskarði
Litur: Rauðskjótt
Faðir: Logi frá Svignaskarði
Móðir: Kjarva frá Svignaskarði
Eigendur og ræktendur: Guðmundur Skúlason, Oddný Mekkín Jónsdóttir

24. Ófelía frá Hafnarfirði
Litur: Bleikálótt
Faðir: Hreyfill frá Vorsabæ II
Móðir: Ólafía frá Gimli
Eigandi og ræktandi: Svavar Arnfjörð Ólafsson

25. Mæja frá Hafnarfirði
Litur: Brún
Faðir: Tíberíus frá Hafnarfirði
Móðir: Salvör frá Syðri-Reykjum
Eigandi og ræktandi: Snorri Rafn Snorrason

26. Aðgát frá Þingnesi
Litur: Rauðblesótt
Faðir: Fróði frá Flugumýri
Móðir: Spá frá Þingnesi
Eigandi og ræktandi: Þorsteinn Eyjólfsson

27. Hrauna frá Svignaskarði
Litur: Brún
Faðir: Apollo frá Haukholtum
Móðir: Kveikja frá Svignaskarði
Eigendur og ræktendur: Guðmundur Skúlason, Oddný Mekkín Jónsdóttir

28. Salka frá Kvíarhóli
Litur: Brún
Faðir: Sólon frá Þúfum
Móðir: Storð frá Stuðlum
Eigendur og ræktendur: Ingólfur Jónsson, Viðar Ingólfsson

29. Gola frá Hnaukum
Litur: Jörp
Faðir: Merkúr frá Svalbarði
Móðir: Ljóska frá Hnaukum
Eigandi: Jónína Vilborg Sigmundsdóttir
Ræktandi: Gunnar Rúnar Gunnarsson

Hestfolöld

1. Rúbín frá Litla-Hálsi
Litur: Rauðtvístjörnóttur
Faðir: Sólargeisli frá Strandbakka
Móðir: Embla frá Minni-Borg
Eigandi: Ingibjörg Jafetsdóttir
Ræktandi: Hannes Gísli Ingólfsson

2. Babar frá Borgareyrum
Litur: Fífilbleikblesóttur
Faðir: Glóblesi frá Borgareyrum
Móðir: Milljón frá Ketilsstöðum
Eigandi: Graðhestafélagið Babar
Ræktandi: Torf túnþökuvinnslan ehf

3. Hljómur frá Hæl
Litur: Grár
Faðir: Tíberíus frá Hafnarfirði
Móðir: Man frá Hæl
Eigandi: Topphross ehf
Ræktandi: Harpa Jóhanna Reynisdóttir

4. Dáti frá ÞingnesiLitur: Rauðblesóttur
Faðir: Skýr frá Skálakoti
Móðir: Furða frá Þingnesi
Eigandi og ræktandi: Þorsteinn Eyjólfsson

5. Kaldi frá Ragnheiðarstöðum
Litur: Rauðglófextur
Faðir: Loki frá Selfossi
Móðir: Hátign frá Ragnheiðarstöðum
Eigandi og ræktandi: Helgi Jón Harðarson

6. Leó frá Þorlákshöfn
Litur: Rauðblesóttur
Faðir: Blær frá Söðulsholti
Móðir: Þrá frá Veðramóti
Eigandi og ræktandi: Linda Steinunn Guðgeirsdóttir

7. Leó frá Hafnarfirði
Litur: Jarpskjóttur
Faðir: Þröstur frá Kolsholti
Móðir: Júlía frá Syðstu-Görðum
Eigandi og ræktandi: Benedikt Þórður Jakobsson

8. Vigri frá Þorlákshöfn
Litur: Brúnstjörnóttur
Faðir: Haukur frá Dufþaksholti
Móðir: Emma frá Króki
Eigandi og ræktandi: Hrefna Rún Olivers Óðinsdóttir

9. Bassi frá Brekku
Litur: Brúnn
Faðir: Safír frá Hjarðartúni
Móðir: Hátíð frá Brekku
Eigendur og ræktendur: Jón Óskar Jóhannesson, Valdís Björk Guðmundsdóttir

10. Ágúst frá Selfossi
Litur: Rauðblesóttur, hringeygður
Faðir: Eldgígur frá Króki
Móðir: Skvísa frá Króki
Eigandi og ræktandi: Rakel Róbertsdóttir

11. Sæberg frá Svignaskarði
Litur: Brúnn
Faðir: Gangster frá Árgerði
Móðir: Védís frá Jaðri
Eigandi og ræktandi: Berglind Rósa Guðmundsdóttir

12. Náttfari frá Áslandi
Litur: Jarpstjörnóttur
Faðir: Ljúfur frá Torfunesi
Móðir: Nótt frá Áslandi
Eigendur og ræktendur: Eyjólfur Sigurðsson, Gyða Sigríður Tryggvadóttir, Kristín Þorgeirsdóttir, Þorgeir Jóhannesson

13. Örn frá Svignaskarði
Litur: Jarpur
Faðir: Dagur frá Hjarðartúni
Móðir: Ör frá Svignaskarði
Eigandi og ræktandi: Guðmundur Skúlason

14. Gunnar frá Selfossi
Litur: Brúntvístjörnóttur
Faðir: Eldgígur frá Króki
Móðir: Dimmalimm frá Króki
Eigandi og ræktandi: Rakel Róbertsdóttir

15. Arður frá Áslandi
Litur: Móbrúnn
Faðir: Sjóður frá Kirkjubæ
Móðir: Sóldögg frá Áslandi
Eigendur: Kristín Þorgeirsdóttir,  Gyða Sigríður Tryggvadóttir, Þorgeir Jóhannesson
Ræktendur: Kristín Þorgeirsdóttir, Þorgeir Jóhannesson 

16. Aríus frá Rauðsgili
Litur: Brúnskjóttur
Faðir: Rómeó frá Röðli
Móðir: Gyðja frá Viðvík
Eigandi: Írena Ósk Þuríðardóttir
Ræktandi: Þuríður Sigurjónsdóttir 

17. Safír frá Litla-Garði
Litur: Jarpur
Faðir: Muninn frá Litla-Garði
Móðir: Saga frá Litla-Garði
Eigandi: Þórunn Þórarinsdóttir
Ræktendur: Herdís Ármannsdóttir, Stefán Birgir Stefánsson

18. Aron frá Síðu
Litur: Rauðblesóttur
Faðir: Skýr frá Skálakoti
Móðir: Ambátt frá Síðu
Eigendur og ræktendur: Steinunn Egilsdóttir, Viðar Jónsson

19. Hannibal frá Mosfellsbæ
Litur: Brúnn
Faðir: Forkur frá Breiðabólstað
Móðir: Þekking frá Litlu-Gröf
Eigandi og ræktandi: Gunnar Valsson

20. Atlas frá Trippadal
Litur: Jarpskjóttur
Faðir: Tígull frá Stekkholti
Móðir: Tíbrá frá Stekkholti
Eigandi: H-Stekk ehf
Ræktandi: Eyþór Steinarsson 

21. Gandur frá Mosfellsbæ
Litur: Rauðtvístjörnóttur, leistóttur
Faðir: Bárður frá Sólheimum
Móðir: Stjörnunótt frá Litlu-Gröf
Eigandi og ræktandi: Gunnar Valsson

22. Fönix frá Framnesi
Litur: Móbrúnn
Faðir: Goði frá Bjarnarhöfn
Móðir: Bergrós frá Litla-Garði
Eigandi og ræktandi: Ásbjörn Helgi Árnason

23. Bergstað frá Brekku
Litur: Jarpskjóttur
Faðir: Kriki frá Krika
Móðir: Njála frá Efstadal II
Eigendur og ræktendur: Jón Óskar Jóhannesson, Valdís Björk Guðmundsdóttir

24. Kári frá Hafnarfirði
Litur: Móálóttur
Faðir: Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum
Móðir: Katalína frá Hafnarfirði
Eigandi og ræktandi: Sævar Smárason

25. Aðalsteinn frá Hafnarfirði
Litur: Móálóttur
Faðir: Moli frá Skipagerði
Móðir: Pía frá Geldingará
Eigandi: Stefán Magnússon
Ræktandi: Aron Bjarni Stefánsson

26. Draumur frá Borgareyrum
Litur: Leirljós blesóttur
Faðir: Kristall frá Borgareyrum
Móðir: Dís frá Borgareyrum
Eigandi: Hjördís Antonía Andradóttir
Ræktandi: Torf túnþökuvinnslan ehf

 27. Hringur frá Þorlákshöfn
Litur: Fífilbleikur, blesóttur, glófextur með hring í auga
Faðir: Dagfari frá Álfhólum
Móðir: Hlíð frá Hvammi
Eigandi: Koltinna ehf, Þorlákshöfn
Ræktandi: Þórarinn Óskarsson