Árs- og uppskeruhátíð fullorðinna 2023

Dansskór og partýgalli 

Kæru Sörlafélagar og aðrir góðir gestir!

Nú er loksins komið að því á ný að við fjölmennum og skemmtum okkur saman og því ekki seinna vænna en að blása til veislu eins og okkur Sörlafólki sæmir!

Árs- og uppskeruhátíð Sörla og allsherjar skrall sem verður án nokkurs vafa eftirminnilegasta skemmtun seinni ára!

Veisluhöldin munu fara fram laugardaginn 18. nóvember í glæsilegum veislusal Hauka. Veitingarnar verða svo sannarlega ekki af verri endanum. Við erum að tala um þriggja rétta dæmi frá snillingnum Silla kokk. Veislustjórn verður í höndum Atla Þórs leikara. Partý-sveitin Steinliggur mun halda öllum vel við efnið á dansgólfinu!

Húsið opnar kl 18:00 með fordrykk.
Borðhald og skemmtun mun svo hefjast á slaginu 19:00 og hljómsveitin byrjar að spila fyrir dansi kl 22:00.
Miðaverð er 12.500 kr en einnig verður hægt að kaupa miða eingöngu á ballið sem kostar 5500 kr (hleypt inn kl 22:00).


Þetta verður ógleymanleg kvöldstund sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara!

Ath. takmarkaður miðafjöldi í boði - svo fyrstur kemur fyrstur fær! Hægt er að tryggja sér miða með því að senda tölvupóst á skemmtinefnd@sorli.is með nafni, símanúmeri og fjölda miða. Afhending miða verður svo auglýst síðar.

Nú er komin tími til að dusta rykið af dansskónum og draga fram partýgallann!

Hlökkum til að sjá ykkur !
Skemmtinefnd Sörla