Í kvöld er aðalfundur Hestamannafélagsins Sörla

Sörlastaðir 

fimmtudaginn 28. september 2023 kl. 20:00
Hestamannafélagið Sörli
Myndmerki Hestamannafélagsins Sörla

Aðalfundur félagsins er í kvöld 28. september 2023 kl. 20:00 að Sörlastöðum.

Hvetjum alla til að mæta.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
3. Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5. Umræður um liði 3 og 4 og atkvæðagreiðsla um reikningana.
6. Formenn nefnda leggja fram og skýra skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.

KAFFIHLÉ

7. Kosning formanns.
8. Kosning þriggja (af sex) manna í stjórn.
9. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.
10. Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega. Í lávarðadeild er ekki kosið, sbr. 18. gr.
11. Tillaga lögð fram til samþykktar um árgjald næsta árs.
12. Önnur mál sem félagið varðar.

Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn.

Stjórn Sörla