Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla 2024

Íþróttamót Sörla 

fimmtudaginn 9. maí 2024 kl. 00:00

Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla 2024 verður haldið dagana 9.-12. maí á Hraunhamarsvelli.

Vegna aðstæðna er mótið lokað, en við hvetjum félagsmenn til að vera með!

Félagsmenn Brimfaxa eru velkomnir á Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla, til að gefa Brimfaxafólki tækifæri til að iðka sýna íþrótt á þeim svæðum sem þau eru að stunda sína hestamennsku.

Aðalstyrktaraðili mótsins er Eykt sem er öflugt þekkingarfyrirtæki í byggingariðnaði og aðalverktaki við byggingu nýrrar reiðhallar Sörla.

Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.

Búið er að opna fyrir skráningu og henni líkur á miðnætti 5. maí. Eftir að skráningu líkur tvöfaldast skráningagjaldið.

Þar sem ekki er hægt að skrá polla yngri en 9 ára í Sportfeng, viljum við biðja ykkur að senda okkur nafn polla og nafn hests á motanefnd@sorli.is og taka fram hvort pollinn verði ríðandi eða teymdur og skráningu fyrir þá líkur einnig á miðnætti 5. maí.

Keppnisgreinar eru eftirfarandi :

· Meistaraflokkur: Tölt T1, Tölt T2, Fjórgangur V1, Fimmgangur F1, Gæðingaskeið PP1.
· 1 flokkur: Tölt T3, Tölt T4, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2. Gæðingaskeið PP1.
· 2 flokkur: Tölt T3, Tölt T4 Tölt T7, Fjórgangur V2, Fjórgangur V5, Fimmgangur F2, Gæðingaskeið PP1
· Ungmenni: Tölt T1, Tölt T2, Tölt 7, Fjórgangur V1, Fimmgangur F1,  Gæðingaskeið PP1.
· Unglingar: Tölt T3, Tölt T4, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fjórgangur V5, Fimmgangur F2.
· Börn: Tölt T3, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fjórgangur V5.
· 100 m skeið P2.
· Pollar: Boðið verður upp á pollaflokk.

Skráningagjöld eru eftirfarandi:

· Barnaflokkur og Unglingaflokkur: 5000 kr.
· Meistaraflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og Ungmennaflokkur: 6000 kr.
· Gæðingaskeið og 100m skeið – 6000 kr 

Sörlafélagar þurfa að hafa greitt félagsgjöldin sín til að hafa keppnisrétt á mótinu.

Allar afskráningar og fyrirspurnir skulu berast á motanefnd@sorli.is

Dagskrá verður auglýst síðar.

Mótanefnd
Sörla

Helstu upplýsingar um viðburð:

Hvað:
Hestamannamót
Hvenær:
Hvar:
Hraunhamarsvellinum og Að Sörlastöðum
Hver:
Mótanefnd hefur umsjón með þessum viðburði.
Viðburðurinn var settur í Dagskrá þann 2. nóvember 2023