Okkar árlega og glæsilega Skírdagshappdrætti hjá Hestamannafélaginu Sörla verður að sjálfsögðu í ár, frá því að við byrjuðum með happdrættið hefur það verið okkar helsta fjáröflun.
Nú geta félagsmenn og aðrir velunnarar Sörla farið að láta sér hlakka til að kaupa miða því miði er möguleiki, en við byrjum að selja miða í Skírdagskaffinu.
Vinningarnir eru stórglæsilegir að vanda og vinningaskráin kemur á vefinn á miðvikudaginn 16. apríl, daginn fyrir skírdag.