Viðhald og litir hesthúsa
Reglulega þarf að ditta að, þrífa, laga til, viðhalda timburverkið , glerja og mála hesthúsin. Hross eru ótrúlega fljót að naga timbrið í gegn ef ekki er borið á það.
Árlega er haldinn sameiginlegur tiltektar- og þrifdagur og er ágætt að nota hann til að skoða og ákveða hvað þurfi að gera varðandi frekara viðhald þegar hrossin eru farin í sumarhagana.
Notum réttu litina og forðumst flekkótt og illa útlítandi hesthúsahverfi.
Hér er uppskriftin:
• Á þakið = ÞOL þakmálning, litur JARÐRAUTT
• Á bárujárnsveggina = ÞOL þakmálning, litur SILKIGRÁTT.
• Á allt timbur (einnig gluggakarma og hurðir) = Olíu KJÖRVARI þekjandi, litur DÖKKBRÚNT.
• Á sökkulinn = ÞOL þakmálning, litur GRÁTT.
Framleiðandi er Málning hf.