|
Eigendaskipti
Við kaup/sölu á hesthúsum þarf að senda upplýsingar til stjórnar húsfélagsins um eigendaskipti til að tryggja að réttir eigendur séu ávallt skráðir fyrir hesthúsunum.
Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram eru eftirfarandi:
• Nafn og kennitala seljanda • Nafn, kennitala, heimilisfang og símanúmer kaupanda • Fastanúmer eignarinnar Við eigendaskipti er mikilvægt er að fá yfirlýsingu frá Húsfélaginu svo að hægt sé að gera upp skuld við húsfélagið ef hún er til staðar við afsal. Það er skylda seljanda, lögum samkvæmt, að upplýsa og leggja fram yfirlýsingu frá húsfélagi. Ef skuld er ógreidd fylgir hún hesthúsinu, þrátt fyrir að skuld sé um að ræða úr tíð fyrri eiganda og því geta nýir eigendur lent í því að þurfa að greiða skuld við húsfélagið vegna fyrri eiganda. Yfirlýsing frá húsfélagi er hægt að sækja á vef félags fasteignasala http://www.ff.is/ |





