Hlíðarþúfur
 
Í hesthúshverfinu í Hlíðarþúfum er starfandi húsfélag.

Húsfélag á félagssvæði Sörla í Hlíðarþúfum,
kt. 581000-2780

Aðilar að Húsfélaginu eru allir eigendur hesthúsa í hverfi Hlíðarþúfna. Það markast af húsunum sem eru í hringjunum, 100, 200, 300 og 400, sem og húsin sem eru fyrir ofan hesthúshringina, í svokallaði efri byggð eða í 500-línunni.

Tilgangur
Tilgangur og hlutverk Húsfélagsins er að er að stuðla að sameiginlegum hagsmunamálum eigenda hesthúsa við Hlíðarþúfur, í samræmi við
lög um fjöleignarhús nr. 26/1994.
Í því felst meðal annars að sjá um varðveislu, viðhald, endurbætur og rekstur sameignarinnar, svo hún fái sem best þjónað sameiginlegum þörfum eigenda og stuðla að og framfylgja því með samþykktum, reglum og ákvörðunum að hagnýting hesthúsanna sé ávallt með eðlilegum hætti og þannig að verðgildi eigna haldist.
Nánari upplýsingar er hægt að finna undir hnappnum lög og reglur Húsfélagsins.

Húsfélagsgjald
Húsfélagsgjald er greitt einu sinni á ári og er sendur gíróseðill á eiganda. Ef margir eru skráðir eigendur að sama hesthúsi er gjaldið skráð á þann eiganda sem stærstan hlut á í eigninni. Ef allir eiga jafnan hlut er sá sem fyrstur er skráður hjá fasteignamati.

Húsfélagsgjaldið er ákveðið árlega á aðalfundi húsfélagsins. Gjaldið var 5.500 kr. fyrir árið 2008. Sjá nánar um húsfélagsgjald undir hnappnum um eigendaskipti.
 

Til baka