27.1.2009 09:31 Aðsent efni Hrossasótt - Hafðu varann á!
Í hesthúsahverfum höfuðborgarsvæðiðsins hafa nú þegar dúkkað upp allnokkur tilfelli hrossasóttar þetta tímabilið. Því miður er hluti hrossana sem drepst af sökum hennar eða þarf að fella af mannúðarsjónarmiðum sökum kvala sem hún veldur. Hrossasótt er lýsing á einkennum, oftast kviðverkjum, sem geta stafað af fjölmörgum sjúkdómum í meltingarvegi. Lesa meira... |
13.1.2009 09:40 Aðsent efni Hjálmar, endurskin og hundar Eitt er það sem nauðsynlegt er að minna hestamenn á – öryggisins vegna. Það er að vera vel sýnilegur í skammdeginu með endurskinsborða eða glitmerki á knapa og hesti. Í svarta myrkri og regni undanfarnar vikur hafa ökumenn þurft að vera vel vakandi og fara hægt á Sörlasvæðinu því margur reiðmaðurinn hefur birst skyndilega á akvegum nokkra metra frá ökutækinu, næstum ósýnilegir. Lesa meira... |
15.10.2008 14:20 Fréttabréf Sörla komið út
Nú ættu flestum félagsmönnum Sörla að hafa borist nýtt fréttabréf félagsins þar sem m.a. er að finna afar áhugaverðar hugleiðingar Sigurðar Ævarssonar um aðalfund og félagsstörf. Hér birtist greinin á vefnum ásamt hvatningu til félaganna að lesa hana og mæta svo á aðalfundinn. Lesa meira... |
1.10.2008 10:51 Sumarferð Sörla 2008 - Ferðasaga
Sumarferð Sörla 2008 við Heklurætur var farin 18.-23. júní. Á föstudaginn kemur er myndakvöld ferðanefndar á Sörlastöðum. Hér birtist ferðasagan eftir Brynju Björk Kristjánsdóttur formann ferðanefndar. Lesa meira... |
20.1.2008 11:58 Greinar Mikið djöfull getur fennt Sælir Sörlafélagar og aðrir. Undanfarna daga hefur kyngt niður snjó í Hafnafirði og víðar. Það er engin nýjung að fenni á Íslandi. Hér meðfylgjandi er saga kotbóndans sem er orðinn frekar leiður á snjókomunni sem virtist aldrei ætla að linna. Lesa meira... |
7.5.2007 10:23 Greinar Reiðkennsla og uppfræðslumál Sörla - Krefjandi íþrótt Ég þakka Sigga Ævars fyrir að vekja máls efninu hér á vefnum. Ég tek undir með honum að reiðnámskeiðin fara vel af stað hjá Friðdóru og Sindra. Frábært að einnig skuli vera námskeið fyrir pollaflokkinn. Reiðkennsla og uppfræðslumál er einn okkar mikilvægustu málaflokka sem við verðum að ná vel utan um. Lesa meira... |
7.5.2007 10:22 Reiðkennsla og uppfræðslumál í Sörla Þá eru reiðnámskeiðin byrjuð af fullum krafti og fara afar vel af stað að mínu mati. Ég hef fylgst með nokkrum hópum á námskeiði og er það sammerkt með þeim öllum að bæði nemendur og forráðamenn eru ákaflega ánægð með hvernig þau Sindri og Friðdóra fara af stað með kennsluna. Lesa meira... |
7.5.2007 10:21 Sumarferð Sörla 2007 Sumarferð Sörla 2007 var farin dagana 20. – 25. júní. Hestum var komið að Herjólfsstöðum í Álftaveri en menn mættu í blíðskaparveðri í félagsheimilið Tungusel í Skaftártungu sem var viðverustaður alla ferðina. Þátttakendur voru 57 Sörlafélagar sem er sennilega mesti fjöldi sem tekið hefur þátt í þessum ferðum. Aðstaðan í Tunguseli var nokkuð góð, mjög stórt og gott eldhús, og stór salur en þeir sem sváfu inni lágu á dýnum í sama sal og borðað var í og hafðar kvöldvökur. Lesa meira... |
7.5.2007 10:19 Undir Dalanna sól Sumarferð Sörla 2006 Undirbúningur fyrir sumarferðina 2006 fór strax af stað eftir að ný ferðanefnd hafði tekið til starfa eftir aðalfund Sörla í október 2005. Eftir talsverða yfirlegu og athuganir, fyrirspurnir og eftirgrennslan var ákveðið að taka stefnuna á Dalina. Haft var samband við Sigurð Þórólfsson bónda í Fagradal á Skarðsströnd og hann var strax fús til að verða leiðsögumaður okkar. Lesa meira... |
7.5.2007 10:15 Sumarferð Sörla í Biskupstungur 2005 („Kerlingatúr” Sörla 2005 – annáll)
Fyrir réttu ári, nánar tiltekið á réttardaginn, voru línur lagðar að sumarferðinni 2005 hjá Sörla. Það mun vera löng hefð fyrir stórri réttarkjötsúpu þennan dag í Kjarnholtum og er hún veitt gestum, gangandi og ríðandi af miklum höfðingsskap. Lesa meira... |
7.5.2007 10:13 Sumarferð Sörlafélaga á Vatnsnes í Vestur-Húnavatnssýslu
Það þótti einhverjum glapræði þegar ferðanefndin ákvað að taka stefnuna norður í land í sumarferð og það um miðjan júní. Menn töluðu um snjó og hraglanda, beitarleysi, kulda og trekk. Ekki verður því neitað að undir byggi vottur af kvíða fyrir vondu vori og harðindum - en guðirnir voru okkur hliðhollir og sumarið gekk í garð í öllum fjórðungum, hratt og örugglega. Lesa meira... |
7.5.2007 10:11 Sumarferð Sörla 2003 í Þórsmörk
Undirbúningur sumarferðarinnar hófst snemma og var umfram allt sótt um gott veður til þessbærra máttarvalda. Svo var samið við Guðmund, bónda og ferðafrömuð í Skálakoti um leiðsögn um grundir vestur-Eyjafjalla og síðan í Þórsmörk, þessa margrómuðu vin í skjóli jökla og brattra hlíða. - Ekki urðum við svikin af þeim viðskiptum. Lesa meira... |
7.5.2007 10:09 Sumarferð Sörlafélaga á Fjörurnar Snæfellsnesi Júlímánuður einkenndist nokkuð af tilhlökkun fyrir sumarferð okkar Sörlafélaga. Það voru tæplega fjörtíu manns sem skráðu sig í ferðina og auðvitað margt að undirbúa eins og gengur. Menn tóku sig ýmsir saman um flutning á góðhestunum vestur en aðrir lengdu í og lögðu í'ann ríðandi. Lesa meira... |
7.5.2007 10:05 Ungar hestakonur slasast oftast Langflest hestaslys verða í apríl og maí, og flestir hestamenn slasast um helgi. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Brynjólfur Mogensen, sviðsstjóri lækninga á slysa- og bráðasviði hjá Landspítala-háskólasjúkrahúsi hefur tekið saman. Lesa meira... |
7.5.2007 10:04 Greinar Reynslusaga af reiðgötu Ágæta hestafólk af gefnu tilefni langar mig að senda inn smá pistil sem tengist atviki er átti sér stað á reiðveginum milli Sörlaskeiðs og Hlíðarþúfna fyrir um það bil tveimur vikum. Sem áður héldum við mæðgur á stað í reiðtúr. Við vorum ekki alltof öruggar með okkur og höfðum verið að fara saman til að vera hvor annarri styrkur. Lesa meira... |
7.5.2007 10:03 Af gefnu tilefni Vegna tíðra slysa á hestafólki, skora ég á stjórn Sörla að Hestamannafélagið Sörli hafi frumkvæði að innleiða einfaldar gæðareglur um undirbúning útreiðatúra einstaklinga og hópa og í framhaldinu að birta slysatíðni Sörlafélaga síðustu tvö árin og setja okkur svo það markmið að fækka slysum.
Lesa meira... |
7.5.2007 10:02 Gunnar gefur góð ráð Eftir Sörlafélagann Hannes Sigurjónsson.
Gunnar Arnarsson bóndi í Auðsholtshjáleigu og tvöfaldur hrossaræktandi ársins var aðalframsögumaður á fjölmennum fræðslufundi hestamannafélagsins Sörla á dögunum. Gunnar og kona hans Kristbjörg Eyvindsdóttir hafa náð ótrulegum árangri í hrossarækt á mjög skömmum tíma eða um 10 árum. Lesa meira... |
7.5.2007 09:52 Glæsileg tilþrif á Grímutölti Myndir og texti Hannes Sigurjónsson
Hið árlega Grímutölt hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði var haldið laugardagskvöldið 18. febrúar. Grímutöltið hefur verið haldið í febrúar á hverju ári í 12 ár og hefur skipað sér sess sem eitt skemmtilegasta töltmótið innandyra. Oft sjást flottir taktar en keppt er í tölti í öllum flokkum, frá pollaflokki og upp í karla- og kvennaflokk og verða allir þátttakendur að skarta grímubúningi. Lesa meira... |
7.5.2007 09:44 “Ég er upptekinn” Hugvekja um félagsanda Góður félagsandi hefur verið eitt af aðalsmerkjum Sörla, en nú bregður svo við að erfitt reynist að manna þær 9 nefndir sem vinna að því að starfsemi Sörla sé virk og hluta rekstrarfjár sé aflað. Stjórnin auglýsti eftir sjálfboðaliðum, aðeins einn gaf sig fram. Hvað veldur er ekki augljóst. Hefur nýliðuninni ekki verið sinnt? Að ungt fólk kæmi árlega inn í nefndirnar. Lesa meira... |
7.5.2007 09:42 Skírdagur hjá Sörla
Það er áratuga löng hefð fyrir skírdagsreið og kaffihlaðborði hjá Sörla. Fyrstu árin var riðið út á Álftanes og boðið upp á kaffihlaðborðið í samkomuhúsinu Garðaholti. Eftir að reiðhöllin á Sörlastöðum var reist var skírdagshlaðborðið flutt þangað. Lesa meira... |
7.5.2007 09:41 Hrossasótt Hvað er hrossasótt? Hrossasótt (kolik) er samheiti yfir marga sjúkdóma sem leiða til sársauka í kviðarholi hestsins. Því getur sjúkdómstilstand í meltingarvegi, þvagfærum, lifur o. fl. leitt til svokallaðrar hrossasóttar. Í flestum tilfellum er þó að ræða vandamál í meltingarvegi. Lesa meira... |
7.5.2007 09:40 Holdhnjóskar Holdhnjóskar er einskonar hrúður sem myndast í húð hrossa, oftast á lend, hrygg eða fótum. ORSAKIR: Vegna kulda og votviðris fara svokallaðir fitukirtlar í húð hrossa að framleiða of mikla fitu. Hún klístrast við hárin og það myndast einskonar hrúður. Lesa meira... |
7.5.2007 09:33 Að byrja í hestamennsku
Mig hafði lengi langað til að reyna mig í hestasportinu því ég hafði nokkrum sinnum farið á hestbak í gegnum árin og hafði mjög gaman af því. Mér bauðst aðstaða fyrir hesta hjá bróður mínum í Hafnarfirði og ákvað því að láta á reyna og verða mér úti um hesta. Ég hafði samband við æskuvin minn sem er bóndi í Borgarfirði og fékk lánaða hjá honum tvo hesta. Lesa meira... |
7.5.2007 09:32 Væntumþykja Hvernig væri að við færum að reka áróður fyrir meiri mannlegri hlýju í garð hestanna okkar? Það er orðið sjaldséð sjón að sjá hestamenn knúsa og kjassa hestana sína, einhvernveginn eins og það sé ekki í tísku að þykja vænt um reiðhestinn. Lesa meira... |
7.5.2007 09:31 Stiklað á stóru í sögu félagsins Grein Jóns Kr. Gunnarssonar í 50 ára afmælisriti Sörla Það var stór dagur hjá hafnfirskum hestamönnum þegar þeir komu saman til undirbúningsfundar í Hressingarskálanum í Hafnarfirði sem þá stóð við Strandgötu. Á fundinn voru mættir nokkrir hestamenn og var samþykkt að halda formlegan stofnfund síðar saman dag. Þetta var hinn 7. febrúar 1944. Kosin var laganefnd sem skyldi semja drög að lögum og skyldu þau lögð fram á stofnfundinum. Í nefndina voru kosnir: Lesa meira... |
Eldri fréttir eftir mánuðum |