26.5.2011 20:50 Frá Búnaðarsambandi Suðurlands Yfirlitssýning á Sörlastöðum um helgina Yfirlitssýning kynbótahrossa á Sörlastöðum fer fram dagana 28. og 29. maí, næstkomandi laugardag og sunnudag.Skipulagning þessara daga og röð flokka er eftirfarandi: Lesa meira... |
23.5.2011 10:57 Frá stjórn Kynbótasýningar á Sörlastöðum hófust í morgun
Kynbótasýningar verða á Sörlastöðum frá og með deginum í dag 23. maí og standa til 29. Reiðhöllinni og völlunum verður lokað fyrir almenna notkun á því tímabili. Veitingasalan verður hins vegar öllum opin meðan á sýningum stendur. Lesa meira... |
8.4.2011 10:40 Frá Kynbótanefnd Fræðslunámskeið um byggingardóma og sýningu hrossa
Athugið breytta dagskrá. Fræðslunámskeiðið um byggingardóma og sýningu hrossa í byggingardómi verður aðeins laugardaginn 9. apríl. Ekki var næg þátttaka til að hafa það líka á sunnudaginn. Hér er dagskráin fyrir fræðslunámskeiðið en það kostar 500 kr. inn og þarf ekki að skrá sig, allir eru velkomnir. Lesa meira... |
6.4.2011 16:08 Frá kynbótanefnd Fræðslunámskeið um kynbótadóma
Kynbótanefnd Sörla stendur fyrir fræðslunámskeiði um byggingardóma og sýningu hrossa í byggingardómi 9. og 10. apríl. Aðaláherslan verður lögð á að læra að þekkja kosti og galla í byggingu og uppstillingu í dómi. Tilvalið námskeið fyrir alla þá Sörlafélaga sem eru að velta fyrir sér hvort sýna eigi kynbótahrossið í vor. Lesa meira... |
23.3.2011 16:24 Frá Kynbótanefnd Kynbótaferð Sörla seinkar – Breytt dagsetning Vegna mikilla anna hjá hestamönnum þann 26. mars verður kynbótaferð Sörla frestað til 30. apríl. Ferðin verður farin á Suðurland og verður dagskrá nánar auglýst síðar, en nú þegar liggur fyrir að m.a. verðu komið við að Ármóti hjá Hafliða Halldórssyni, sem lofar flottum kynbótahrossum í bunkum. Lesa meira... |
4.3.2011 22:51 Frá Kynbótanefnd Folaldasýning 2011 - dagskrá og ráslisti
Folaldasýning Sörla verður haldin að Sörlastöðum á morgun, laugardaginn 5.mars og hefst hún kl.13.00. Frítt er inn á sýninguna og kaffisala gegn vægu verði. 39 folöld eru skráð til leiks og dómarar eru Magnús Lárusson og Svanhildur Hall. Lesa meira... |
4.3.2011 11:11 Frá Kynbótanefnd Folaldasýning Sörla 2011 Stórglæsileg verðlaun - Spennandi uppboð á folatollum
Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin í reiðhöllinni að Sörlastöðum í Hafnarfirði þann 5. mars næstkomandi. Sýningin byrjar klukkan 13:00. Frítt inn. Keppt verður í flokki merfolalda annars vegar og hestfolalda hins vegar. Dómararnir eru Svanhildur Hall og Magnús Lárusson. Öllum er heimilt að koma með folöld á sýninguna. Lesa meira... |
16.2.2011 08:30 Frá Kynbóta- og Fræðslunefnd Ræktun í Kirkjubæ - Fræðslufundur í kvöld! Fræðslukvöld hjá Sörla
Ágúst Sigurðsson hrossaræktandi í Kirkjubæ og fyrrverandi landsráðunautur Bændasamtaka Íslands í hrossarækt heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni „Ræktun í Kirkjubæ“ á fræðslukvöldi Sörla, Sörlastöðum miðvikudaginn 16. febrúar kl. 20:00. Lesa meira... |
15.10.2010 20:08 Frá Kynbótanefnd Ræktunarmenn og kynbótahross Sörla 2010 Á aðalfundi hestamannafélagsins Sörla í gærkvöldi var ræktandi hæst dæmda hross ársins heiðraður. Það var Sörlafélaginn Jón Benjamínsson, sem ræktaði stóðhestinn Blysfara frá Fremra-Hálsi, sem hlotnaðist heiðurinn í ár. Blysfari er 5 vetra Arðssonur sem hlaut 8,31 í aðaleinkunn í dómi í sumar. Lesa meira... |
Eldri fréttir eftir mánuðum |