3.5.2011 11:59 Frá húsfélagi Hlíðarþúfna Hreinsunardagur á laugardaginn í Hlíðarþúfum
Kæru nágrannar í Hlíðarþúfum. Nú er komið að vorverkunum. Stjórn húsfélagsins efnir til hreinsunardags laugardaginn 7. maí frá klukkan 10:00 til 14:00. Við munum byrja á því að hreinsa saman hverfið okkar en að því loknu getur fólk hreinsað til í sínum húsum ef það vill. Klukkan 13:00 ætlum við að grilla og fá allir sem vilja pylsur og gos. Lesa meira... |
19.2.2011 21:52 Frá húsfélagi Hlíðaþúfna Kæru nágrannar í Hlíðarþúfum! Nú hefur starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar verið á stjá í hverfinu og honum finnst allt of mikið um að margar rúllur séu fyrir utan hús. Hann hafði því samband við umsjónarmann Sörlastaða og tjáði honum að ef eigendur myndu ekkert gera myndi bærinn ganga í málið. Lesa meira... |
18.2.2011 11:44 Frá húsfélagi Hlíðarþúfna Hringgerðissmíði í Hlíðarþúfum Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá erum við Sigurjón búin að vera að vinna í að rífa niður hringgerðið gamla. Það stendur til að setja upp nýtt um helgina. Ef einhver hefur brennandi áhuga á að hjálpa til þá er aðstoð vel þegin. Lesa meira... |
7.2.2011 13:26 Aðsent efni Í tilefni af heyrúllu umræðu inni á hestafréttum. Það er greinilegt að það er mikill hiti í fólki vegna þessa heyrúllumáls og finnst mér umræðan ekki alltaf á háu plani. Gaman væri ef allir þeir sem hafa svona sterkar skoðanir á umgengismálum í Hlíðarþúfum myndu láta sjá sig á aðalfundi húsfélagsins sem haldinn er á hverju ári, en þar hefur mæting verið dræm undanfarin ár, í staðinn fyrir að vera með leiðindi og skítkast undir dulnefni inni á einhverjum vef. Lesa meira... |
2.2.2011 10:52 Frá vefstjóra Húseigendur á Sörlasvæðinu - umgengni og hey! Ábending hefur borist vefstjóra um að menn hafi verið að klaga Sörlavefinn á spjallvef Hestafrétta vegna fréttar okkar um að Umhverfissvið bæjarins hyggist fjarlægja heyrúllur og bagga við hús í Hlíðarþúfum á kostnað eigenda ef ekki verður farið að reglum um umgengni. Vefnum hefur ekki borist neitt bréf vegna þessa máls en það skal áréttað hér að Sörlavefurinn er fyrir alla félagsmenn og hugsaður til þæginda fyrir þá. Hlutverkið er að miðla upplýsingum sem gætu varðað okkar félagsmenn og um starfsemi félagsins. Allir geta sent frétt á vefstjori@sorli.is og fengið sitt efni birt svo framarlega sem það er birtingarhæft. Lesa meira... |
31.1.2011 16:01 Húseigendur Hlíðarþúfum Húseigendur í Hlíðarþúfum athugið!
Umhverfissvið Hafnarfjarðarbæjar hafði samband við Starfsmann Sörlastaða og benti á að mikið er um heyrúllur og bagga utan við hús í Hlíðarþúfum. Ef ekki verður brugðist við þessari ábendingu og ástandið lagað mun þjónustumiðstöð Hfj.b. fjarlægja heyið á kostnað eigenda. Lesa meira... |
10.8.2010 13:00 Frá stjórn húsfélags Hlíðaþúfna Kæru húseigendur í Hlíðarþúfum
Það hefur verið töluvert líf í hesthúsahverfinu í júlí. Hafa þó nokkrir hesthúsaeigendur tekið upp hamar og/eða pensil og unnið að viðhaldi húsanna sinna. Þetta eru jú orðin 20 ára gömul hús, sem þarfnast verulegs viðhalds til að þau grotni ekki niður. Það er gaman að sjá hversu mörg hús eru orðin verulega fín og til mikils sóma fyrir eigendur. Lesa meira... |
Eldri fréttir eftir mánuðum |