2.2.2012 17:51
Frá Ferðanefnd
Fyrsti félagsreiðtúr ársins á laugardaginn
Félagsreiðtúr ferðanefndar verður fainn kl. 14:00 þann 4. febrúar næst komandi. Safnast verður saman við suðurgafl Sörlastaða og riðinn hóflegur hringur við hæfi lítt þjálfaðra hesta.

Lesa meira...

30.12.2011 10:35
Frá Ferðanefnd
Gamlársdagsreiðtúrinn
Gamlársdagsreiðtúrinn verður samkvæmt hefð á gamlársdag kl. 13.30 en þá hittast Sörlafélagar í fyrstu samreið vetrarins, kveðja árið sem er að líða og búa sig undir að fagna nýju og góðu ári í hestamennskunni.
Lesa meira...

13.10.2011 16:09
Frá Ferðanefnd
Langar þig að vera í Ferðanefnd?
Mikil endurnýjun verður í Ferðanefnd Sörla á komandi starfsári. Ferðanefnd stendur fyrir félagsreiðtúrum yfir vetrartímann sá fyrsti á gamlársdag. Hún stendur fyrir grill-, Helgafells- og Krýsuvíkurtúra að vori og skipuleggur og undirbýr fimm daga sumarferð í júní. Mjög mikilvægt er að í nefndina veljist fólk með áhuga á hestaferðalögum og góðum félagsskap.
Lesa meira...

23.6.2011 10:16
Frá Ferðanefnd
Sumarferð Sörla lokið
Velheppnaðri sumarferð Sörla í Dalina er nú lokið en rúmlega 20 hressir Sörlafélagar tóku þátt að þessu sinni.  Ferðin hófst í Hvammi í Norðurárdal þar sem hestunum var safnað saman í upphafi ferðar. 
Lesa meira...

20.5.2011 15:22
Frá Ferðanefnd
Sumarferð Sörla - örfá laus pláss
Enn séu örfá laus pláss í sumarferð Sörla sem farin verður dagana 17.-22. júní nk.  Ferðinni er að þessu sinni heitið í Dalina, nánar tiltekið Miðdali og nágrenni. Hér er að finna leiðarlýsingu sem og upplýsingar um verð og fleira.
Lesa meira...

18.5.2011 14:22
Frá Ferðanefnd
Miðnæturreiðin umhverfis Helgafell tókst vel
Helgafellstúrinn tókst frábærlega vel.  Hátt í 100 manns tóku þátt. Þessi ferð skipar veglegan sess í vetrarstarfi félagsins.  Veðrið var gott og ekki vitað til þess að nein óhöpp hafi orðið.
Lesa meira...

11.5.2011 13:14
Frá Ferðanefnd
Helgafellstúrinn er í kvöld!
Hinn sívinsæli Helgafellstúr verður á föstudaginn kemur, þann 13.maí nk. Brottför er stundvíslega klukkan 20:00 frá suðurgafli Sörlastaða. Mótanefndin hefur tekið að sér að sjá um veitingasölu í túrnum með hefðbundnum hætti, svo menn sleppa við að smyrja en þurfa að taka með sér aur.
Lesa meira...

9.5.2011 12:55
Frá Ferðanefnd
Grilltúr Sörla tókst vel!
Grilltúrinn á föstudaginn var farinn í blíðskaparveðri en um 60 manns tóku þátt í reiðinni sem farin var samkvæmt venju að venju um Selhöfðann í kringum Hvaleyrarvatn.
Lesa meira...

6.5.2011 15:55
Frá Ferðanefnd
Grilltúr Sörla er í kvöld - föstudag!
Grilltúr Sörla er á föstudaginn kemur þann 6. maí. Lagt verður upp í árlegan grilltúr Sörla klukkan 19:00 frá suðurgafli Sörlastaða - veðurspáin er ljómandi góð. Farið verður í léttan reiðtúr og síðan grillað saman á Sörlastöðum.
Lesa meira...

20.4.2011 08:27
Frá Ferðanefnd
Félagsreiðtúr á skírdag - riðið á móti gestum
Leggjum upp klukkan 13:00 á skírdag/sumardaginn fyrsta frá suðurgafli Sörlastaða. Riðið verður á móti gestum á leið í skírdagskaffið hjá okkur Sörlamönnum.
Lesa meira...

18.4.2011 15:25
Frá Ferðanefnd
Sumarferð Sörla 2011 - kynningarfundur í kvöld
Sumarferð Sörla 2011 verður dagana 17.-22. júní. Kynningarfundur verður haldinn á Sörlastöðum mánudaginn 18. apríl kl. 20:00.
Lesa meira...

10.3.2011 19:22
Frá Ferðanefnd
Félagsreiðtúr á laugardaginn
Félagsreiðtúr verður á laugardaginn kemur þann 12. mars. Brottför verður klukkan 13:30 frá suðurgafli Sörlastaða.
Lesa meira...

 Eldri fréttir eftir mánuðum

Til baka