1.2.2012 23:15
Frá Æskulýðsnefnd
Óskum eftir bingóvinningum
Æskulýðsnefndin stendur fyrir árlegu bingói þann 28. febrúar næstkomandi. Eins og ávallt stefnir nefndin að því að bjóða upp á góða og glæsilega vinninga enda vel sóttur og vinsæll atburður í vetrardagskránni. Til að svo megi verða leitum við til Sörlafélaga sem eru aflögufærir eða reka fyrirtæki sem geta lagt fram gjafir sem nota má í bingóvinninga.
Lesa meira...

31.1.2012 08:58
Frá Æskulýðsnefnd
Smali 2012 - úrslit og myndir
Smalinn 2012 var haldinn á laugardaginn var. Þrátt fyrir risjótt veður, vatnselg og krap var ágæt þátttaka og knapar á öllum aldri skemmtu sér vel við að ríða þrautabrautina sem Kristján Jónsson hannaði. Talsvert var um skemmtileg tilþrif í keppninni og úrslit urðu eftirfarandi.
Lesa meira...

31.1.2012 08:51
Frá Æskulýðsnefnd
Æskan og hesturinn - Viltu vera með?
Óskum eftir þátttöku krakka á öllum aldri til að taka þátt í Æskan og hesturinn, sem haldin verður þann 1. apríl n.k.
Lesa meira...

27.1.2012 09:08
Frá Æskulýðsnefnd
Smali - Opið mót hjá Sörla - síðasti skáningardagur er í dag!
CocaCola mótaröðin
Nú er komið að hinni árlegu smalakeppni æskulýðsnefndarinnar og að þessu sinni höfum við fengið Coke í lið með okkur og þeir ætla að bjóða upp á drykki og verðlaun. Mótið er opið öllum og kostar ekkert að keppa. Við höfum fengið Kristján Jónsson til að koma og hjálpa okkur við uppsetningu á brautinni.

Lesa meira...

12.1.2012 11:49
Frá Æskulýðsnefnd
Æskulýðsnefndin er komin á Facebook
Æskulýðsnefndin er búin að stofna hópsíðu á Facebook. Hópurinn er lokaður hópur og því þarf að sækja um aðgang, sem verður að sjálfsögðu veittur öllum Sörlafélögum.
Lesa meira...

8.11.2011 14:52
Frá Æskulýðsnefnd
Skráning á námskeið í knapamerkjakerfinu
Nú er hafin skráning í knapamerkin hjá okkur í vetur. Við byrjum á kennslu í bóklega hlutanum núna í nóvember og verður fyrsta kennslustundin þann 21. nóvember. Kennt verður tvisvar í viku en nánari tímasetningar verða gefnar út í lok þessarar viku. Verkleg kennsla hefst svo í byrjun janúar.
Lesa meira...

15.8.2011 15:10
Af Hestafréttum
Íslandsmóts yngri flokka 2011 - Viðurkenningar Knapamerkja
Á nýafstöðnu Ísladsmóti barna og ungmenna sem haldið var á keppnissvæði hestamannafélagsins Mána í Keflavík fengu 2 ungar hestakonur viðurkenningar fyrir besta frammistöðu á 5. Stigi Knapamerkjanna árið 2011.
Lesa meira...

8.6.2011 08:16
Frá ÍBH
Afreksmannasjóður ÍBH
Afreksmannasjóður ÍBH óskar eftir umsóknum um líkamsræktarkort fyrir unga og efnilega íþróttamenn innan þíns félags. Viðkomandi íþróttamaður þarf að vera í afrekshópi eða unglingalandsliði viðkomandi sérsambands. Athugið að ekki er hægt að sækja um fyrir yngri en 15 ára og ekki eldri en 20 ára.  Umsókninni skal fylgja:
Lesa meira...

6.6.2011 20:51
Frá Æskulýðsnefnd
Dagsferð Sörlakrakka fjöru/sundreið á Álftanesi
Sóti bauð okkur í fjöru/sundreið í gær sunnudaginn 5. júní. Þetta var frábær ferð en myndir segja meira en mörg orð svo endilega lítið á þessar.
Lesa meira...

30.5.2011 16:50
Frá æskulýðsnefnd
Dagsferð Sörlakrakka fjöru/sundreið á Álftanesi
Æskulýðsnefnd Hestamannafélagsins Sóta býður okkur í "óvissuferð" á Álftanes, sunnudaginn 5. júní. Mæting við félagshús Sóta kl. 15:30.  Farið verður í stuttan reiðtúr um Álftanes sem endar í hvítri sandfjöru þar sem hægt verður að prófa sundreið fyrir þá sem vilja.  Hinir geta buslað með hestana í sjónum, hleypt í fjörunni, riðið út í Hrakhólma eða týnt skeljar.
Lesa meira...

23.5.2011 13:14
Aðsent efni
Hestaferð í Svíþjóð á vegum FEIF fyrir unglinga og ungmenni
Nú í sumar, 9. – 12. ágúst, verður boðið í fyrsta sinn uppá hestaferð í Svíþjóð fyrir unglinga og ungmenni.  Markmið ferðarinnar er að eiga saman nokkra skemmtilega daga á hestabaki í sveitasælunni í Svíþjóð.
Lesa meira...

3.5.2011 12:34
Frá Æskulýðsnefnd
Keppnisnámskeið - æfingamótí dag - uppfærður ráslisti!
Í dag stundvíslega kl. 18:00 verður æfingamót keppnisnámskeiðsins. Hver og einn ber ábyrgð á að vera mættur á réttum tíma á upphituðum hesti. Gott er líka að hafa í huga að vera í snyrtilegum reiðfötum og á vel snyrtum hesti. Uppfærður ráslisti (ath. breytt röð) er eftirfarandi .
Lesa meira...

 Eldri fréttir eftir mánuðum

Til baka