Sælir Sörlafélagar og aðrir. Undanfarna daga hefur kyngt niður snjó í Hafnafirði og víðar. Það er engin nýjung að fenni á Íslandi. Hér meðfylgjandi er saga kotbóndans sem er orðinn frekar leiður á snjókomunni sem virtist aldrei ætla að linna.
Sagan gerist að mig minnir 1983 en þá hafði kyngt niður snjó svo vikum skipti. Það var nánast ógerlegt að koma votheyinu á milli skepnuhúsanna vegna fannfergis. Stelpnastóðið sem bóndi nefnir í kvæðinu voru í raun heimasæturnar á bænum. Bóndi var ráðagóður með afbrigðum. Hann fékk sér nokkra togarakassa batt band í þá, fyllti þá síðan af votheyi og beitti síðan stelpnastóðinu fyrir. Með þessum hætti var hægt að koma öllu heyinu í sauðakjaftana.
Kristín Auður Elíasdóttir
Mikið djöfull getur fennt
,,Mikið djöfull getur fennt“.
Dag eftir dag og nótt eftir nótt
fellur mjöllin viðstöðulaust
niður á þessa óendanlegu flatneskju
sem eitt sinn var jörð,
með blómskrúði og grænu grasi.
en liggur nú sem endalaus óskapnaður,
kennileita- og ummerkjalaus
svo langt sem augað eygir.
,,Mikið djöfull getur fennt“.
Já, ennþá spáir Veðurstofan
suðaustan til suðvesta átt
og vaxandi snjókomu.
Fyrir utan gluggaborurnar
iðar þetta endalausa, ógegnsæja
dúnlétta drífukóf.
Þar sem harðfrosnir dropar himinsins
eltast í blindingjaleik hvor við annan.
,,Mikið djöfull getur fennt“.
Hvernig var staða kotbóndans?
Ráðvilltur og reikandi
skjögrar hann á milli
kaffenntra kofaskriflanna,
en ófærðin er slík
að neftóbaksmengaðarnar nasirnar
missa annan hvorn andardrátt
og kjafturinn fyllist af fönn.
,,Mikið djöfull getur fennt“.
Það verður æ verra og verra
að koma viðbjóðslegri votheysslepjunni
í síjótrandi sauðakjaftana
þrátt fyrir stelpnastóðið
sem brýst um í ófærðinni.
Strekkir í böndum á stolnum kassa
frá togaraútgerð H.D. Dýrfirðinga,
veltandi um hrygg með sköllum
og skammyrðum.
,,Mikið djöfull getur fennt“.
En karlbjálfinn bægslast eftir
með hálftóman heypokann,
sökkvandi á kaf í hverju spori,
rennandi ellimóðum augum
upp í þetta óraunverulega umhverfi,
horfandi á ekki neitt
utan rassgatið á sjálfum sér.
Slík er andskotans ófærðin.
,,Mikið djöfull getur fennt“.
(Elías M V Þórarinsson)