WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

 
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

27.1.2009 09:31
Aðsent efni
Hrossasótt
- Hafðu varann á!

Í hesthúsahverfum höfuðborgarsvæðiðsins hafa nú þegar dúkkað upp allnokkur tilfelli hrossasóttar þetta tímabilið. Því miður er hluti hrossana sem drepst af sökum hennar eða þarf að fella af mannúðarsjónarmiðum sökum kvala sem hún veldur. Hrossasótt er lýsing á einkennum, oftast kviðverkjum, sem geta stafað af fjölmörgum sjúkdómum í meltingarvegi.

 

 

TEXTI: Björgvin Þórisson dýralæknir




Snöggar breytingar

Skyndilegar breytingar sem snúa að fóðrun og þjálfun virðast vera þeir þættir sem auka mest líkurnar á því að hross fái einkenni hrossasóttar. Víða virðist vera virkilegur misbrestur á því hvernig hross eru fóðruð seinni part hausts. Mikilvægt er að reyna að takmarka sem mest fóðubreytingarnar hjá hrossunum. Því er nauðsynlegt að byrja að gefa útigangi um leið og þörfin fyrir auka orkugjafa eykst, hagar minnka eða veður verða válynd. Grófar bungur og rákir í hófum (fóðurbreytingar) geta gefið hestamanninum vísbendingu um hversu miklar fóðurbreytingar urðu síðasta hálfa árið eða svo. Þegar á hús er komið er mikilvægt að gefa ekki of kraftmikið (próteinríkt) hey í fyrstu heldur stýra fóðrun hrossanna eftir fóðurástandi síðustu vikur og mánuði áður en tekið var inn. Það er próteinmagnið í fóðrinu og meltanleiki þess sem hefur mest áhrif á hrossin. Verði það of mikið safnast eiturefni upp í líkamanum við útskilnað og getur valdið nýrnaskemmdum. Alvarlegasta einkennið er sem fyrr segir hrossasótt en hófsperra, múkk og ásignir fætur vægari einkenni.

Ofþjálfun slæm

Hross eru með lítinn maga og á útigangi skammta þau sér frekar smáa skammta í einu. Þess vegna er algjört lágmark að gefa hrossum tvisvar á dag og haga fóðrun þannig að gefið sé á svipuðum tíma dags.Of mikil og skörp þjálfun á hrossum sem hafa verið í hvíld í marga mánuði getur einnig valdið þessum einkennum. Ofát á kraftmiklu heyi, kraftfóðri eða lýsi getur hæglega dregið hross til dauða. Því er mikilvægt að fóðurgeymslur séu tryggilega lokaðar í hesthúsum. Einnig getur verið varsamt að setja sveitt hross út í gerði í lengri tíma en nokkrar mínútur, þau eru snögg að ofkælast.

Rétt viðbrögð

Hrossasóttareinkenni leyna sér sjaldnast. Hrossasótt er einn af þeim sjúkdómum sem hestaeigandinn tekur mjög fljótt eftir. Rétt viðbrögð eru að hringja strax í dýralækni sem gefur fyrirmæli um hvað eigi að gera þangað til hann kemur. Því fyrr sem dýralæknir kemur á staðinn því meiri líkur eru á bata. Væg hrossasótt getur þróast í verra tilfelli ef ekkert er að gert.

Bæði líffærafræðilegar og starfrænar ástæður eru fyrir því af hverju hross hafa svo viðkvæmt meltingarkerfi

  • Hross geta ekki kastað upp
  • Náttúruleg ofvirkni í vinstra víðgirni
  • Löng garnaupphengja í smáþörmum
  • Þarmainnihald þarf að hreyfast upp á við þegar það fer inn í mjaðmagrind
  • Þrenging þarma við mjaðmasnúnig víðgirnis
  • Botnlangi er stór og getur stíflast

Ástæður hrossasóttareinkenna

  • Stífla - yfirleitt í víðgirni
  • Krampasótt - of miklar hreyfingar þarma - oftast smáþarma
  • Sjálfhverfur þarmur - fellur inn í sjálfan sig
  • Garnaflækja - oftast smáþarmar
  • Garnasnúningur - oftast víðgirni
  • Teppa á blóðflæði til þarma - oft ásamt garnaflækju/garnasnúningi
  • Þemba - of mikil gasmyndum - oftast í botnlanga eða víðgirni
  • Blóðtappi í görn - mikil ormaveiki og ormarek dreyrorma

Einkenni hrossasóttar

  • Liggja flatir í lengri tíma
  • Ekki með sjálfum sér
  • Eyrðarleysi
  • Fíla grön
  • Horfa aftur fyrir sig - eftir kviðnum
  • Standa eins og reynt sé að losa sig við þvag
  • Sparkað með afturfótum upp í kvið.
  • Svitna
  • Láta sig falla til jarðar og velta sér.

Meðferð

  • Taka frá fóður
  • Hafa greiðan aðgang að vatni
  • Hringja í dýralækni
  • Lyfjameðferð dýralæknis
  • Verkjastillandi lyf
  • Lyf sem örva/slaka á vöðvum þarmanna
  • Gott er að rölta um með hrossasóttarsjúka hest


Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir