|
13.1.2009 09:40
Aðsent efni Hjálmar, endurskin og hundar Eitt er það sem nauðsynlegt er að minna hestamenn á – öryggisins vegna. Það er að vera vel sýnilegur í skammdeginu með endurskinsborða eða glitmerki á knapa og hesti. Í svarta myrkri og regni undanfarnar vikur hafa ökumenn þurft að vera vel vakandi og fara hægt á Sörlasvæðinu því margur reiðmaðurinn hefur birst skyndilega á akvegum nokkra metra frá ökutækinu, næstum ósýnilegir. Annað er reiðhjálmurinn. Það á enginn að fara á bak hesti nema með hjálm – aldrei! Svo einfalt er það. Fyrir nokkru sást til karlmanns með barn sér við hlið að ríða út nálægt reiðskemmunni. Hestur barnsins varð órólegur og barnið datt af baki. Feðginin voru bæði hjálmlaus. Þegar spurt var hverju sætti, var svarið “Æ, hjálmarnir voru í öðrum bíl en við fórum á í hesthúsið.” Það er ekkert öryggi í að eiga hjálm sem ekki er á höfði knapans. Mörg slys hafa orðið á undanförnum árum þegar fólk hefur dottið af hestbaki, sum mjög alvarleg, það er enginn óhultur. Vertu ekki næstur! Þriðja atriði sem varðar öryggi, eru lausir hundar sem eigendur taka með sér í útreiðatúr eða láta valsa um svæðið. Öllum hundaeigendum ætti að vera ljóst að lausaganga hunda er bönnuð á Sörlasvæðinu. Hættan er að hestar fælist þegar hundar koma hlaupandi þeim að óvöru og þá er voðinn vís. Sjáumst heil. Hilmar Sigurðsson Til baka |





