WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

 
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

15.10.2008 14:20

Fréttabréf Sörla komið út

Nú ættu flestum félagsmönnum Sörla að hafa borist nýtt fréttabréf félagsins þar sem m.a. er að finna afar áhugaverðar hugleiðingar Sigurðar Ævarssonar um aðalfund og félagsstörf. Hér birtist greinin á vefnum ásamt hvatningu til félaganna að lesa hana og mæta svo á aðalfundinn.






Skeiðarinn – Hugleiðingar um aðalfund

Nú líður senn að aðalfundi Sörla en 63. starfsári félagsins er að ljúka. Árið hefur verið gott
og viðburðaríkt á flestum sviðum hestamennskunnar enda landsmótsár. Þetta eru tímamót
svipuð og áramót eru í lífi fólks og þá er gott að staldra við, fara yfir það sem liðið er, meta
árangur og íhuga svo næstu skref.

Félagið er stórt, það er orðið næststærsta hestamannafélag landsins, hefur vaxið og
þanist út að öllu leyti – eða er það ekki? Ég veit það ekki alveg sjálfur, sumt finnst mér
ekki hafa þróast sem skyldi. Það gætu reyndar verið vaxtaverkir, en mér finnst samheldnin
og þátttaka í félagstörfum ekki hafa aukist í réttu hlutfalli við félagatalið. Maður spyr sig,
hvort félagið hleypi ekki nýju fólki svo auðveldlega að störfum, eða hvort fólk hafi bara
ekki áhuga á að vinna að félagsmálum lengur. Að halda úti félagsstarfi gerist ekki af sjálfu
sér, frekar en annað. Það er fullt af fólki sem leggur mikið – já, mjög mikið á sig – til að
við getum öll fundið okkur eitthvað við hæfi á vettvangi félagsins. Það er rekið öflugt
æskulýðsstarf, fjölbreytt mótahald er starfrækt og unnið er að reiðvegamálum, ferðamálum,
skemmtanahaldi, fræðslumálum og mörgu fleiru.

Stjórnunar- og nefndastörf í félagi eins og okkar er allt unnið í sjálfboðavinnu og leiðir
þetta starfsframlag fólks til betra lífs, bæði í tómstundum og starfi. Ég sat um daginn fund í
stjórn ÍBH, þar sem Þórdís Gísladóttir flutti magnað erindi um verðmæti sjálboðaliðastarfs
innan íþróttahreyfingarinnar, fyrir bæjarfélög sem og þjóðfélagið allt. Erindið var unnið
úr lokaritgerð hennar í háskólanámi. Hún lagði fram ótrúlegar tölur varðandi verðmæti
vinnuframlags innan íþróttahreyfingarinnar og er þá ekki annað talið en krónur og aurar.
Enn verðmætara er framlag sjálfboðaliðanna sem forvarnargildi í íþrótta- og félagsstarfi.
Í Sörla starfa, fyrir utan stjórn félagsins, 9–10 fastanefndir og ráð, síðan bætast við fullt
af sjálfboðaliðum í tiltekin verkefni. Trúlega eru það u.þ.b. 120 manns sem að meðaltali
funda og starfa við tiltekin verkefni félagsins, 10–12 sinnum á ári. Ef við gerum ráð fyrir
að fundir taki að meðaltali 3 klst. með undirbúningi, þá eru þetta u.þ.b. 5000 vinnustundir
að lágmarki. Það er talsvert framlag til okkar allra sem stundum hestamennsku í Sörla. Ég
vil hvetja menn að spyrja sig, hvort ekki sé rétt að leggja á sig smá aukavinnu og taka þátt
í félagsstarfinu. Fleira fólk fær meiru áorkað, hugmyndaauðgi eykst, meira fjör verður í
starfinu sem skilar svo örugglega betri árangri og öflugra félagi.

Við gerum miklar kröfur um að allt sé á besta veg, ef við ætlum að keppa, fara á námskeið,
taka þátt í hestaferð, fara á fræðslufund eða þorrablót. Við ætlumst til að þeir sem
standa fyrir atburðinum séu búnir að undirbúa hann af kostgæfni, allt sé klárt þegar við
mætum. En erum við alltaf sanngjörn við það fólk sem er að störfum og kunnum við að
þakka það sem vel er gert? Hver félagi þarf að spyrja sig þessara spurninga. Ef fólk gerir
eins og það getur best er erfitt að fara fram á meira, við verðum að vera sanngjörn í kröfum
okkar til annarra. Ég held að hollt sé að hugsa: „Hvað get ég gert fyrir félagið?“, en ekki
„Hvað getur félagið gert fyrir mig?“ Nú er verið að auglýsa eftir fólki til starfa í nefndum
á vef félagsins. Ég hvet alla sem áhuga hafa á framgangi félagsins að gefa sig fram.
Það er margt í farvatninu hjá Sörla eins og alltaf. Við sækjum um að halda Íslandsmót á
næstu árum, bæði fullorðins- og unglingamót, sitt hvort árið. Við ætlum okkur að gera það
þannig að sómi verði af bæði fyrir okkur sjálf og bæjarfélagið. Stækkun á félagsaðstöðu
okkar til íþróttaiðkunar er fyrirhuguð. Fyrir dyrum stendur mikil hugmyndavinna varðandi
skipulagsmál á svæðinu, við þurfum að hugsa til framtíðar – hugsa stórt. Nýverið
auglýsti Sörli starf yfirþjálfara til umsóknar. Yfirþjálfara er ætlað að vinna við og stýra
uppbyggingu fræðslumála innan félagsins. Þetta mun styrkja tengingu félagsins við IBH,
ÍSÍ, Hfb. og ekki síst við menntakerfi þjóðarinnar. Það verður gífurlega spennandi að
fylgjast með þessu nýja starfi í mótun og sjá hvert það leiðir okkur.

Sameinumst um að gera gott félag betra, komum með hugmyndir um hvað eina sem
gæti fleytt okkur fram veginn. Við verðum að sýna í verki samstöðu og framsýni og styrkja
stöðu okkar í öllu sem félaginu viðkemur, hvort sem um er að ræða íþróttaiðkun, útreiðar,
fræðsluuppbyggingu eða skipulagið s.s. reiðvegi, hesthús og aðstöðu alla á okkar frábæra
svæði – svæði Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði.

Siggi Ævarss



Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir