WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

 
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

1.10.2008 10:51

Sumarferð Sörla 2008 - Ferðasaga

Sumarferð Sörla 2008 við Heklurætur var farin 18.-23. júní. Á föstudaginn kemur er myndakvöld ferðanefndar á Sörlastöðum. Hér birtist ferðasagan eftir Brynju Björk Kristjánsdóttur formann ferðanefndar.










Sumarferð Sörla 2008
18. – 23. júní
Við Heklurætur

Að þessu sinni var haldið í Rangárvallasýslu í Landsveitina. Ferðanefnd fór í könnunarleiðangur í lok október 2007 eftir að hafa heyrt vel látið af þessu svæði.

Eftir að hafa skoðað aðstæður voru skálarnir tveir á Rjúpnavöllum pantaðir og var þar samastaður hópsins alla ferðina. Skálarnir standa við bakka Ytri Rangár við Heklurætur. Annar skálinn var notaður sem samkomu- og matsalur en hinn fyrir gistingu. Skálarnir taka samtals um 40 manns í sæti og gistingu og var ákveðið að takmarka fjöldann við það.

Kynningarfundur var haldinn í mars 2008 og sýndu félagsmenn ferðinni mikinn áhuga, margir skráðu sig strax á fundinum.

Þátttakendur í ferðinni voru 40 og var Kristinn Guðnason, bóndi á Árbæjarhjáleigu, fararstjóri ferðarinnar.

Miðvikudagur 18.júní.

Síðdegis byrjaði fólk að streyma að og koma sér fyrir, margir voru með fellihýsi og hjólhýsi, en u.þ.b. helmingur hópsins gisti í skála. Mikil eftirvænting og tilhlökkun ríkti í hópnum og strax kom í ljós að allir voru tilbúnir að leggja sitt af mörkum og hjálpa til við að færa borð, stóla, leirtau, ísskáp o.fl.á milli skála og koma vistum fyrir.

Ferðanefnd bar fram síðbúinn kvöldverð og síðan var tilkynnt hvernig hópaskipting yrði í ferðinni. Kristinn fararstjóri mætti á svæðið og fór í grófum dráttum yfir væntanlegar dagleiðir sem hann breytti svolítið m.a vegna þess að búið er að girða sumstaðar þar sem fyrirhugað var að fara og eins til að sleppa við að teyma hrossin, þannig að hægt var að reka alla ferðina.

Fimmtudagur 19.júní.
Rjúpnavellir – Áfangagil

Þennan fyrsta reiðdag var bjart veður en svolítill vindur sem orsakaði mikið sandfjúk þar sem lítill gróður er á þessu svæði. Sest var í hnakkana kl. 11

þennan morgun og spratt reksturinn af stað með miklum látum eins og yfirleitt vill verða í upphafi ferðar. Það tók hesta og menn fyrstu tvo áfangana að slaka á og eftir það gekk reksturinn vel alla ferðina.

Riðið var upp Heklubraut og áð við Tröllkonuhlaup. Sagan segir að klettaeyjar sem eru þarna í Þjórsá hafi tröllkonan úr Búrfelli sett í ána svo hún þyrfti ekki að væta sig í fæturna þegar hún fór að finna systur sína í Bjólfelli og stokkið þar yfir í þrem hlaupum.

Síðan farið í átt að Krakatindi, niður með Nýjahrauni að Valafelli og endað í Áfangagili. Vorum komin þangað um kl. 16. Sumum þótti þetta frekar stuttur dagur og fóru þeir í einhesta túr inn í gil ekki langt frá. Kristinn fararstjóri var svolítið upptekin í símanum stundum enda landsmót framundan og mikið að gera. Þegar inn í umrætt gil var komið var Kristinn einmitt í símanum og einhver í hópnum var ekki lengi að nefna gilið Sörlagil! Í sumarferð Sörla árinu áður var ónefndur foss nefndur Sörlafoss svo það leit út fyrir að það gæti orðið hefð í þessum ferðum að skíra eitthvað í náttúrunni í höfuðið á félaginu. En sá draumur varð að engu þegar Kristinn var búinn í símanum, gilið hafði nafn og heitir Hrútagil!

Hópurinn var svo sóttur í tveimur áföngum og keyrður á Rjúpnvelli, allir þreyttir en sælir, með augun full af ryki og nefið af ... Matarhópurinn var að sjálfsögðu í fyrri ferð til að byrja að elda, grilluð bleikja var á matseðlinum sem smakkaðist með eindæmum vel.

Skemmtinefndin hóf störf og hélt uppi fjöri langt fram á kvöld.

Föstudagur 20. júní.
Áfangagil - Rjúpnavellir

Lagt var af stað frá Áfangagili rétt fyrir hádegi í björtu og fallegu veðri. Nú var riðið í átt að Sauðafelli, riðið með vatninu og austur fyrir Bjalla, á aðaleldstöðvar Heklu, þar sem landslagið minnir helst á tunglið. Áð var við Feðga, fell við Heklurætur og taldi Kristnn að við værum fyrsti hópurinn sem ríður þar að. Þótti Pálma rekstrarstjóra gaman að því að járna fyrir Björn í Feðgum við Feðga. Útsýnið sem við fengum yfir suðarland þennan daginn var stórfenglegt en dagurinn var nokkuð erfiður fyrir hestana, töluvert bratt oft á tíðum, upp og niður og jarðvegurinn mjög gljúpur.

Riðið var fram Næfurholtsfjöll og komið niður fyrir neðan Næfurholt við Hraunteig en þar er mikill kjarrgróður og birkiskógur með Ytri-Rangá sem gaman var að ríða eftir. Farið var yfir ánna á Glerhausvaði sem er við Rjúpnavelli, rétt fyrir kl. 18.

Fólk var frekar þreytt eftir daginn en það gleymdist fljótt eftir sturtu og góðan mat en þetta kvöld reiddi matarhópurinn fram grillaðar svínalundir sem bráðnuðu í munnum manna.

Skemmtinefndin sveikst að sjálfsögðu ekki undan merkjum þetta kvöld frekar en önnur og var glaumur og gleði fram eftir. Einar Sturlaugsson spratt fram sem fyrsta flokk gítarleikari og spilaði undir fjöldasöng en hann hefur haldið þessum hæfileikum til hlés fram að þessu.



Laugardagur 21. júní

Þennan morgun var sól og blíða en sú mesta fluga sem menn höfðu séð, allt var svart! Erfitt var að finna út réttan fatnað þennan dag, því það skiptust á skin og skúrir, meira að segja skall á haglél og jörð varð grá um morguninn. Það var meðan stærsti hluti hópsins beið á meðan miklar járningar fóru fram, allt of miklar, ekki höfðu alveg allir farið eftir þeim tilmælum að hestar ættu að vera nýjárnaðir.

Þennan dag var riðinn hringur, niður með Þjórsá og aftur að Rjúpnavöllum. Fyrirhugað var að ríða niður að Skarði og skilja hrossin þar eftir yfir nóttina og svo að Rjúpnavöllum næsta dag. En vegna þess að einhverjir landeigendur hafa girt fyrir reiðleiðir á jörðum sínum var dagleiðinni aðeins breytt.

Eftir að hafa riðið yfir mjög gróft og úfið hraun í átt að Búrfelli var áð við Þjófafoss sem er foss í Þjórsá framan undir Búrfellshálsi. Sagt er að hann dragi nafn af því að þar væru þjófar teknir af með því að kasta þeim í fossinn og drekkja þeim.

Eftir þetta var mestur hluti dagsins moldar- og sandgötur inn í Lambhagaskógi. Mjög fallegt, góðar og skemmtilegar reiðgötur og gott veður þann hluta dagsins.

Áður en lagt var í lokasprettin komu þær Guðrún og Ragnheiður í áningu til okkar færandi hendi með heitt kakó og Stroh sem fæstir gátu staðist.

Síðasti spretturinn var á veginum upp að Rjúpnavöllum í grenjandi rigningu og var hann nokkuð langur án áningar og að sumra mati helst til hratt farið. En voru ekki menn og hestar komnir í þjálfun? Að minnsta kosti eftir þetta! Gott var að komast heim í heita sturtu og þurr föt.

Matarhópurinn grillaði lambalæri sem bragðaðist betur en nokkru sinni fyrr.

Um kvöldið spilaði Antoniette, á gítar og söng. Skemmtinefndin henti fram þremur fyrripörtum og spreyttu menn og konur sig á að botna með mis góðum árangri. Farið var í reyptog o.fl. skemmtilegt gert.

Sunnudagur 22. júní
Rjúpnavellir - Bjólfell - Rjúpnavellir

Þennan morgun var fínt veður en töluverð fluga. Byrjað var að ríða með veginum að Næfurholti. Þar voru lausir hestar geymdir í girðingu á meðan riðinn var svokallaður Bjólfellshringur. Ófeigur, bóndinn í Næfurholti fór með og var hann hafsjór af fróðleik. Farið er upp fyrir bæinn og inn á hinn forna Heklustíg sem lá upp í hlíðar Heklu en fór undir hraun í gosinu 1947.

Þegar komið var upp á hæðina skall á hellidemba og sneru þá nokkrir við, höfðu fengið nóg af rigningu í lok síðasta dags. En þeir áttu heldur betur eftir að sjá eftir því, stuttu síðar dró ský frá sólu og fegurðin, hraunið, birkið, lyktin, fellið og Hekla, allt þetta blasti við og snerti við fólki, það féll í stafi yfir fegurðinni og fólk kom alsælt til baka. Riðin var önnur leið til baka að Rjúpnavöllum, komið var inn á skógargöturnar þær sömu og endað var á anna daginn og riðið yfir Ytri-Rangá á vaðinu við Rjúpnavelli. Rétt áður en heim var komið skall enn ein demban á mannskapnum og náði að bleyta og kæla fólkið svo það var kærkomið að fá kjötsúpuna um kvöldið.

Skemmtinefnd sveikst ekki undan merkjum frekar en fyrri daginn, farið var í púttkeppni o.fl.

Mánudagur 23. júní
Frágangur- heimferð

Allt tekur enda líka Sörlaferðir. Borðaður var sameiginlegur morgunverður þennan dag en svo var komið að því að ganga frá og þrífa. Allir lögðust á eitt í þessu eins og öðru og góði málshátturinn -Margar hendur vinna létt verk- var hafður að leiðarljósi eins og alltaf hjá þessum hópi. Svo var að koma hestum á kerrur og bíla, eftir það kom að tregafullri kveðjustund, fólk hélt heim á leið með góðar minningar og margir farnir að huga að því hvert verði farið næsta sumar.

Lokaorð
Enn ein Sörlaferðin er að baki og tókst hún vel eins og endranær. Fólk og hestar komu heil til byggða og gleðin ríkti í hópnum allan tímann.

Það sem gerir Sörlaferðir einstakar er samheldnin, samhjálpin og samvinnan. Allir hafa hlutverk og gegna því af mikilli samviskusemi. Að vísu má segja að einn og einn geri e.t.v. ekki allt það sem fyrirhugað var samkvæmt hópaskipulagi en þá er nær undantekningalaust hægt að reiða sig á að sá hinn sami leggi sitt af mörkum á annan hátt, t.d. með því að aðstoða félaga sína við járningar, ná hestum eða annað. En eins og ferðafélagar í Sörla hafa haft það, að vera umburðarlyndir hver við annan hafa góða skapið í öndvegi og leggja sitt af mörkum, þá verða þessar ferðir ógleymanlegar.

Að þessu sinni eins og svo oft áður vorum við með mjög góðan fararstjóra sem féll vel í hópinn, er vel kunnugur staðháttum og ekki of stíft skipulag á dagleiðum sem hentaði okkur mjög vel.

Ferðanefnd þakkar samferðafókli innilega fyrir ógleymanlegar stundir á liðnu sumri og vonast til að eiga eftir fleiri slíkar stundir með þessum hópi.



Hér kemur kveðskapurinn sem varðveittist kvöldið 21. júní:

Kveðið að kvöldi þriðja ferðadags í sumarferð Sörla 2008. Fyrripartarnir komu frá Ragnheiði og Guðrúnu. Seinnipartarnir eru ekki allir feðraðir/mæðraðir en höfundar mega gjarnan gefa sig fram og líka gera endurbætur!

1.
Í Sörlaferðum ávallt er

ákaflega gaman.

Sem aðkomukerling vil ég segja

gott er að vera saman.

(Ragnhildur)

Kiddi í Rangá er allsber,

hann og Birgir saman.

(Guðni)

Þar lífsgleðin og fjörið fer,

og fólkið vinnur saman.

(Ragnheiður)

Fer þar hestamannaher

Guðrún er aðaldaman.

(Guðni)

Svakalega þykir mér

að vera svona saman.

(BBK)

2.
Fákar hlaupa hratt í fang
hlýjum sunnanvindi.

Einar Sturlaugs fer í gang,

ef hann er í viskí bindindi.

(Guðni)

Bjór við birtu og yl er lang-

best og lífsins yndi.

(?)

Að þekkja og stilla þeirra gang,

það er lífsins yndi.

(Höf. ókunnur)

Skeiða merar hratt í braut

Hristist jörð og bakkar þjóta hjá.

(Ómar)

Einn og tveir og þrír og bang,

Ég held nú heim og syndi.

(BBK)

3.
Á grundunum við gömlu Heklu
griðastað ég á.

Hér enginn býr við hestseklu.

Hér hrossin best má sjá.

(?)

Áðan ég sá,

meðan ég lá,

mína stórutá.

(?)

Sef við hlið minnar gömlu Völku.

Strákar: fyrst ég hana sá!

(Guðni)

Af lífsins bestu gæðum enga eklu,

en allsnægtir má sjá.

(Hvað er í byggðum betra að fá?)

(Ragnheiður)

Ef enginn hefur öxlina

og víðáttan er hrá,

þá munum við óbyggðum

drekka bjór og virkilega slaka á.

(?)

Og að lokum: lengi lifi ferskeytlan!

Bestu kveðjur,
Ragnheiður



Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir