WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

 
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

7.5.2007 10:23
Greinar
Reiðkennsla og uppfræðslumál Sörla - Krefjandi íþrótt

Ég þakka Sigga Ævars fyrir að vekja máls efninu hér á vefnum. Ég tek undir með honum að reiðnámskeiðin fara vel af stað hjá Friðdóru og Sindra. Frábært að einnig skuli vera námskeið fyrir pollaflokkinn. Reiðkennsla og uppfræðslumál er einn okkar mikilvægustu málaflokka sem við verðum að ná vel utan um.

Kröfurnar munu bara aukast. Nú er það svo að þjálfunar- og menntunarmál eru í raun á forræði margra nefnda. Æskulýðsnefndin ber þar hitann og þungann í starfinu.

Það er góð hugmynd að bjóða upp á aukna fræðslu á haustmánuðum, t.d. með bóklegri fræðslu. Við getum stóraukið fjölbreytni námsframboðs. Gætum haft hliðsjón af knapamerkjakerfinu en margt af því sem þar er kennt á erindi til allra hestamanna, líka þeirra sem eldri eru.

Námskeið – æfingar
Spurn eftir þjálfun og fræðslu höfum við svarað með námskeiðum, mismunandi lögnum. Það er ágætt en ég tel tímabært að við skipuleggjum þetta betur.

Fræðslu- og reiðnámskeið eru góð. Eins og nafnið bendir til standa þau í takmarkað tíma. Hvað æskulýðs- og íþróttastarf snertir tel ég að við eigum að líta á hvernig þetta er gert í öðrum íþróttagreinum. Þar eru skipulagðar æfingar stóran hluta úr ári, ár eftir ár. Börnum og unglingum er boðið upp á aðstæður til að ná framförum sem íþróttafólk.

Ég tel að ímynd hestamennsku sem lífstíll og áhugmál sé sterkari en ímynd hennar sem íþrótt. Bæði í hugum hestamanna og annarra. Margir hestaáhugamenn, börn og fullorðnir, verja 20-40 tímum á viku við iðkun hestamennsku. Þetta svarar til iðkunar afreksíþróttamanna í öðrum íþróttagreinum! Fyrir suma er hestamennskan nefnilega ekki bara áhugamál og lífstíll heldur einnig afar krefjandi íþrótt. Mér virðist þó að það vanti e.k. ramma þ.a. iðkendur njóti stuðnings og geti gert þetta skipulegar.

Lítið dæmi:
Við héldum námskeið fyrir börn sem ætluðu í úrtöku fyrir landsmót á síðasta ári. Snorri Dal var þjálfari og þetta gekk mjög vel. Það myndaðist góð stemming í hópnum og áhrifin af þessu fín. Fyrirvarinn var hins vegar skammur og stíf keyrsla. Líklega hefði farið betur á því að flétta þessu starfi saman við knapamerkjanámskeiðin sem voru í gangi um veturinn.

Legg til að við skipuleggjum æskulýðstarfið sem íþróttaiðkun, frá pollaflokki og upp úr. Þetta gæti verið beinagrindin í íþrótta- og fræðslustarfinu, þar sem iðkenndur fara á ÆFINGAR. Saman við þetta mætti flétta námskeiðum, bóklegum og verklegum, eins og við þekkjum þau.

Um leið og við höfum skýrt skipulag í þessum efnum má að ráða þjálfara/reiðkennara til lengri tíma, en markast af einu námskeiði, líkt og gert er í öðrum íþróttagreinum.

Tek undir orð Sigga um reiðhöllina, við þurfum að huga að nýjum úrræðum. Það sást t.d. á Grímuleikum s.l. helgi.

15. febrúar 2007
Darri



Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir