|
7.5.2007 10:22
Reiðkennsla og uppfræðslumál í Sörla Þá eru reiðnámskeiðin byrjuð af fullum krafti og fara afar vel af stað að mínu mati. Ég hef fylgst með nokkrum hópum á námskeiði og er það sammerkt með þeim öllum að bæði nemendur og forráðamenn eru ákaflega ánægð með hvernig þau Sindri og Friðdóra fara af stað með kennsluna. Þau taka sérstaklega vel á móti krökkunum, ræða við þau og taka vandlega út hestana saman, setja svo nemendur í mismunandi æfingar og verkefni, eftir því í hvaða stöðu krakkarnir eru í reiðmennskunni.Þessi aðferð vekur upp spurningu hvort ekki sé nauðsynlegt að hafa alltaf tvo kennara að störfum í einu eða kennara og aðstoðarmann. Það er alveg klárt mál að því meiri rækt sem við leggjum við reiðnámskeiðin, því betri og öflugri krakka fáum við í hestamennskuna. Þá erum við bæði að tala um almenna reiðmennsku og þá sem stunda eða stefna á keppni. Til að efla gildi reiðmennskunnar sem keppnisíþróttar er nauðsynlegt að leggja sérstaka rækt við að koma upp öflugum afrekshóp keppniskrakka. Íþróttabandalögin styrkja t.d. nær eingöngu þau félög sem hafa öfluga afreksmannastefnu í gangi. Við Sörlamenn erum afar heppin að fá tvo reiðkennara menntuð og útskrifuð frá Hólaskóla. Þau Sindri og Friðdóra hafa sýnt það og sannað að góðar, hlýlegar móttökur sem og gott skipulag á kennslunni skiptir höfuðmáli til að gera námsefnið áhugavert og skemmtilegt fyrir krakkana. Það er frábærlega að verki staðið hjá þeim skötuhjúum. Mínar vangaveltur í sambandi við reiðnámskeiðahald almennt hjá félaginu er hvort ekki skorti meiri fjölbreytni í reiðnámskeiðum og hvort ekki sé möguleiki á fleiri tímum, jafnvel oftar í viku eða framhald í vor og sumar. Það væri kannski hægt að keyra frekara nám samhliða reiðnámskeiðum sumarsins. Gaman væri að fá umræðu um þetta efni á vefnum, eða á framhaldsaðalfundinum 1. mars. Ég hef trú á að við séum hvergi nærri búin að uppfylla eftirspurn eftir fræðslu og námskeiðahaldi í félaginu. Það er örugglega erfitt fyrir þá sem skipuleggja fræðslustarfið að finna út hvaða námskeið vantar ef ekki koma óskir frá okkur sem ætlum að nota þjónustuna. Væri t.d. hægt að taka bóklegt nám að hausti í öllum stigum knapamerkjakerfisins líkt og tíðkast í tólistarnámi þar sem nemendur geta klárað tónfræðina, þótt þeir séu ekki komnir á efri stig í náminu sjálfu? Gæti verið möguleiki að bjóða uppá námskeið fyrir mjög ung börn og jafnvel foreldra þeirra líka til að koma krökkunum af stað í hestamennskuna? Væri hugsanlegt að bjóða reiðhöllina til reiðkennara eða hópa sem hafa áhuga á að gera eitthvað sjálfstætt? Mín sannfæring er sú að innan skamms verður þessi reiðhöll alltof lítil til að sinna þörfum okkar Sörlamanna og allir lausir tímar, hvort sem er að vori eða hausti, verði fullnýttir af okkur félagsmönnum. Það er alveg ótrúleg gróska í þessari íþrótt og við verðum að vera á tánum hugmyndalega séð, til að fygjast með sem er að gerast í umræðunni og vera reiðubúin fyrir nýja tíma. Febrúar 2007 Til baka |





