|
7.5.2007 10:21
Sumarferð Sörla 2007 Sumarferð Sörla 2007 var farin dagana 20. – 25. júní. Hestum var komið að Herjólfsstöðum í Álftaveri en menn mættu í blíðskaparveðri í félagsheimilið Tungusel í Skaftártungu sem var viðverustaður alla ferðina. Þátttakendur voru 57 Sörlafélagar sem er sennilega mesti fjöldi sem tekið hefur þátt í þessum ferðum. Aðstaðan í Tunguseli var nokkuð góð, mjög stórt og gott eldhús, og stór salur en þeir sem sváfu inni lágu á dýnum í sama sal og borðað var í og hafðar kvöldvökur. Ekki varð vart við að þeir sem nýttu sér þá aðstöðu hafi haft ama af. Aðeins tvær sturtur voru fyrir allan þennan fjölda en ekki reyndist neinn ágreiningur um að komast í þær, sturtuferðirnar gengu hratt og vel fyrir sig sem lýsir vel samvinnunni og tillitseminni sem ríkti í hópnum. Margir komu með fellihýsi, tjaldvagna, tjöld og hjólhýsi og var góð flöt fyrir þá. Jón Geir Ólafsson bóndi í Gröf var fararstjóri. Síðdegis og fram á kvöld miðvikudaginn 20. júní streymdi fólk í Tungusel og tók til við að koma sér fyrir. Síðbúinn kvöldverður var borinn fram og síðan var farið yfir hvernig næstu dagar yrðu. Fólk fékk að vita hvernig hópaskipting yrði en eins og hefð er komin á í Sörlaferðum fá allir hlutverk í ferðinni sem er breytilegt dag frá degi, sjá um mat, þrif og hesta o.fl. Farið var yfir hvernig dagleiðirnar yrðu og þá sérstaklega fyrsti dagur. Ljóst var að mikill spenningur og eftirvænting ríkti í hópnum, einnig tilhlökkun. Fimmtudaginn 21. júní var komið að fyrsta reiðdegi. Reiðleiðin var frá Herjólfsstöðum að bænum Austurhlíð sem er skammt frá Tunguseli. Rútan var komin um kl. 10 að sækja mannskapinn sem beið þess með óþreyju að hefja ferðina. Þar sem ljóst var að þessi leið var ekki mjög löng var ákveðið að þeir sem hefðu hug á, færu fyrst hring um sveitina til að hita upp menn og hesta. Þá riðum við m.a. fram hjá bæ sem er með lengsta nafn á landinu, Þykkvabæjarklaustursnorðurhjáleiga! ( í daglegu tali Norðurhjáleiga) En svo var komið að því að hefja reksturinn og einn, tveir og bingó, allt rauk af stað, en síðan náðust góð tök á stóðinu og allt gekk vel. Við fengum hjálp frá lögreglunni á Klaustri við að koma rekstrinum yfir þjóðveginn þannig að það gekk með ágætum. Veðrið var mjög gott, skýjað og hlýtt. Vorum komin heim í Tungusel laust fyrir kl. 18.00. Eftir mat, uppþvott og þrif, tók skemmtinefndin við og stóð fyrir mjög skemmtilegri kvöldvöku eins og öll önnur kvöld. Föstudagurinn 22. júní rann upp með yndislegu veðri og þennan dag var riðið upp á Hrífunesheiði og eins og gefur að skilja var þessi dagur að hluta til töluvert á fótinn.. Ætlunin var að fara yfir hana alla og taka hring en einn eigandi heiðarinnar leyfði ekki að farið yrði með hópinn yfir hans hluta heiðarinnar, þó svo að slóðar séu þar eins og annars staðar, þannig að við riðum til baka að hluta til sömu leið og við komum og enduðum í Snæbýli eins og ráðgert var. Þarna upp á heiðinni var mjög mikið og fagurt útsýni, engin spjöll á landslagi, engin möstur eða annað, bara okkar fagra land í öllu sínu veldi svo langt sem augað eygði. Þvílík fegurð! Skemmtinefndin hélt uppteknum hætti og stóð fyrir góðri skemmtun fram eftir kvöldi. Laugardaginn 23. júní vöknuðum við í sól og góðu veðri en þegar líða fór á morguninn var hætt að sjást til fjalla, mikið moldarfok grúfði sig yfir hálendið. Þegar rútan hafði flutt mannskapinn upp í Snæbýli fór Jón Geir með öðrum heimamönnum upp á heiðar að kanna ástandið og kom þá í ljós að leiðin upp í Hólaskjól var ófær vegna moldroks. Settur var á fundur, Jón Geir, ferðanefnd og Siggi Jónasar, sem var með í ferðinni en hann er einn af eigendum jarðarinnar Skaftárdals og er því mjög kunnugur á þessum slóðum. Sett var á áætlun B og ákveðið að ríða í Skaftárdal til Sigga, fallega en að hluta mjög grófa leið og þaðan var svo farið einhesta um jörðina og inn að Hundafossi og þaðan inn með Miðdalsá inn á milli gljúfra þar til við komum að fallegum fossi sem ekki var vitað um nafn á og fékk hann það góða nafn, Sörlafoss! Þarna var mjög fallegt landslag og þetta reyndist góður dagur. Um kvöldið kom harmonikkuleikari og spilaði gömlu dansana sem sumir nýttu sér og dönsuðu skottís og ræl. Á eftir sungið og kveðnar rímur. Morguninn eftir fréttist af nokkrum sem höfðu velt sér naktir upp úr dögginni að fornum sið, enda Jónsmessunótt. Sunnudaginn 24. júni vorum við komin í Skaftárdal rétt fyrir kl. 11. Þá kom í ljós að hestarnir voru komnir úr girðingunni en það sást til þeirra upp á fjalli og fóru nokkrir að sækja þá. En þá kom í ljós að það vantaði 33 hesta í hópinn. Það tók þrjár klukkustundir að finna þá, leitað var fótgangandi, á hestum og á fjórum fjórhjólum. Mikil gleði ríkti í hópnum þegar þeir loksins komu. Búið var að hringja í flugturn og biðja flugvélar sem voru á lofti að kíkja yfir svæðið. Þeir fundust í gili langt í burtu og í ljós kom að tveir voru slasaðir í hópnum og þurfti að kalla til dýralækni. Ákveðið var að fara einhesta hring í „bakgarðinum“ hjá Sigga, eins og hann kallaði það, farið upp á fjall og yfir heiði og komið svo niður bratt einstigi sem varð að fara fótgangandi. Að þessu loknu var svo riðið niður á Gröf með allan reksturinn en þar býr Jón Geir fararstjóri. Þar með var reiðinni lokið en eftir var enn ein góð kvöldvaka og skemmtun. Mánudaginn 25. júní eftir morgunverð og frágang var hestunum komið á bíla eða kerrur og þeim flestum komið í sína sumarhaga. Enn einni sumarferð Sörla er lokið. Þrátt fyrir að þurfa að breyta þremur dagleiðum af fjórum, þ.e. yfir Hrífunesheiði, sleppa Hólaskjóli vegna moldroks og loks að breyta síðasta degi vegna þess að hluti af hestunum týndist, þá var gleðin ávalt alls ráðandi í hópnum, fundnar voru lausnir og ekki gert mikið úr vandamálum sem upp komu heldur voru þau leyst á farsælan hátt. Allir unnu saman sem einn maður, engin kom sér undan verkum og fólk almennt tilbúið að leggja sitt af mörkum til að láta hlutina ganga, gera ferðina ánægjulegri. Þetta er ein fjölmennasta ferð sem Sörli hefur staðið fyrir, mörkin hafa yfirleitt verið sett við 50 manns en erfitt reyndist að halda sig við það mark en þó komust ekki alveg allir með sem vildu. En þrátt fyrir fjöldann gekk allt svo vel en það er þannig að þegar allir leggjast á eitt þá gengur vel. Ferðanefnd þakkar öllum fyrir góða ferð. Brynja Björk Kristjánsdóttir Myndirnar tók Valdimar Jónsson Til baka |





