WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

 
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

7.5.2007 10:02

Gunnar gefur góð ráð
Eftir Sörlafélagann Hannes Sigurjónsson.

Gunnar Arnarsson bóndi í Auðsholtshjáleigu og tvöfaldur hrossaræktandi ársins var aðalframsögumaður á fjölmennum fræðslufundi hestamannafélagsins Sörla á dögunum. Gunnar og kona hans Kristbjörg Eyvindsdóttir hafa náð ótrulegum árangri í hrossarækt á mjög skömmum tíma eða um 10 árum.

Gunnar lýsti sinni ræktun, sagði frá sínum stofnhryssum, helstu eiginleikum og sérstöðu þeirra innan sinnar hrossaræktar. Einnig rakti hann sögu búsins með skemmtilegri myndasýningu og frásögn af þeim hrossum sem komið hafa til dóms og blómstrað.

Skemmtilegar umræður spunnust á fundinum um Orra frá Þúfu, fósturvísaflutninga og fjárstyrki frá hinu opinbera svo eitthvað sé nefnt. Gunnar endaði fundinn með því að gefa mönnum góð ráð í hrossarækt og taldi upp hin fimm grundvallaratriði sem hann hefur farið eftir í sinni hrossarækt:

Gæði umfram magn - Að komast yfir góða, vel ættaða hryssu. Betra er að eiga eina úrvals hryssu en nokkrar miðlungs. Mikilvægt er að hryssan sé yndi eiganda síns og búi yfir einhverjum úrvals eiginleika sem eigandinn vill rækta fram.

Pörun – Stóðhesturinn sem nota á skal vera eðlisgóður og hafa komið fljótt til í tamningu. Hann þarf að standa á styrkum stoðum ættlína sem gefist hafa vel í ræktun. Huga þarf að samlagningarvali, þ.e. að eiginleikann sem hryssan hefur að úrvali hafi stóðhesturinn ekki síðri og helst betri. Útkoman er að eiginleikinn verði jafn eða betri í afkæminu.

Uppeldi – Standa þarf vel að umhirðu ræktunarhryssna og uppeldi folalda og tryppa. Folöld skulu vera eins lengi undir mæðrum sínum og kostur er. Tryggja skal nægt og gott fóður, skjól og umhirðu.

Frumtamning – Lengi býr að fyrstu gerð. Frumtamningin er það sem síst má spara til. Frumtamning er annað hvort vel heppnuð eða illa heppnuð. Vönduð frumtamning er eitthvað sem hrossið býr að alla ævi og verður ekki löguð eftir á.

Svo er hestur sem hann er hafður – Ávallt skal velferð hrossins vera í fyrirrúmi.

Þessi grein birtist í 2. tbl. Tímaritsins HESTAR árið 2006.



Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir