WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

 
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

7.5.2007 09:44

“Ég er upptekinn”
Hugvekja um félagsanda

Góður félagsandi hefur verið eitt af aðalsmerkjum Sörla, en nú bregður svo við að erfitt reynist að manna þær 9 nefndir sem vinna að því að starfsemi Sörla sé virk og hluta rekstrarfjár sé aflað. Stjórnin auglýsti eftir sjálfboðaliðum, aðeins einn gaf sig fram. Hvað veldur er ekki augljóst. Hefur nýliðuninni ekki verið sinnt? Að ungt fólk kæmi árlega inn í nefndirnar.

Hefur áhugi á félagsstörfum minnkað? Er fólk orðið sjálfhverfara en áður? Er Sörli orðinn of stór? Eða eru allir svona uppteknir? Og þá við hvað? Hvert er þitt persónulega svar, ágæti Sörlafélagi?

Fyrir skömmu kallaði reiðveganefndin eftir mannskap til að tína grjót úr reiðvegunum í Gráhelluhrauni. Hafnarfjarðarbær hefur fallist á, að beiðni stjórnar, að skaffa ákveðið magn af ofaníburði, því víða þarf að endurbæta vegina. Mæting var laugardaginn 8. október kl. 10 f.h., kaffi á staðnum og svo öl á eftir. Formaður nefndarinnar bað um að fengnar yrðu 30 hrífur að láni hjá Bænum, enda lægi það í augum uppi að þetta væri mesta þarfaverk sem varðaði alla hestamenn á Hafnarfjarðarsvæðinu. Aðeins einn Sörlafélagi mætti fyrir utan nefndarmennina tvo. Þessi eini hefði haft gilda ástæðu til að vera í hópi hinna 613 og notað tímann í sínu fagi söðlasmíðinni. Skrítið að hestamenn eigi ekki lausa stund á þessum árstíma þegar hrossin eru víðs fjarri. Er orðatiltækið “maður er manns gaman” orðið úrelt? Hvar varst þú?

En það er fleira en vinnuframlag sem félagsmenn eru sparir á því allt of mikið er útistandandi af ógreiddum félagsgjöldum. Innheimtan gekk betur í fyrra á afmælisárinu en þá greiddu menn ekki nema hálft gjald, því þeir fengu góða flístreyju í afmælisgjöf. Varla stendur upphæðin í mönnum, 6000 króna árgjald samsvarar 500 kr. á mánuði eða tæpum 114 kr. á viku. Það er auðvelt að neita sér um einhvern óþarfa mánaðarlega og greiða þess í stað þessa upphæð sem fer jú í okkar eigin sjóð. T.d. að sleppa því að taka videospólu og verja áhorfstímanum í nefndarstarf. Þarna fóru tvær flugur í einu höggi! Svo er bara að mæta á aðalfundinn og heyra hvað þú berð úr býtum fyrir félagsgjaldið.

Láttu ekki þitt eftir liggja.

Við Sörlamenn höfum fallegasta svæði á landinu og erum öfunduð af nágrannafélögum okkar fyrir það. Vetrardagskrá Sörla undanfarin ár hefur verið sú öflugasta meðal hestamannafélaga og fleira mætti jákvætt telja. Þetta bakslag er því vonandi stundarfyrirbrigði sem við þurfum að taka á og sameiginlega snúa fram á við. Gerum betur, temjum okkur félagslyndi og kjörorðin “Ég skal”. Við erum öll í hestamennsku fyrir ánægjuna.

Látum gamminn geisa!

Október 2005.
H. Sig.



Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir