|
7.5.2007 09:42
Skírdagur hjá Sörla
Það er áratuga löng hefð fyrir skírdagsreið og kaffihlaðborði hjá Sörla. Fyrstu árin var riðið út á Álftanes og boðið upp á kaffihlaðborðið í samkomuhúsinu Garðaholti. Eftir að reiðhöllin á Sörlastöðum var reist var skírdagshlaðborðið flutt þangað. Í áranna rás hefur hróður þessarar samkomu borist víða og nú flykkjast hestamenn ríðandi í Hafnarfjörð á skírdag frá öllum nágranna hestamannafélögunum, jafnvel Keflvíkingar hafa slegist í hópinn. Þann 8. apríl s.l. mættu um það bil 700 manns í kaffið á Sörlastöðum og var það mikilfengleg sýn þegar flotarnir komu í gegnum Heiðmörkina. Hátt í 100 Sörlafélagar riðu að sjálfsögðu á móti gestunum að venju.Til baka |






