WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

 
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

7.5.2007 09:41

Hrossasótt

Hvað er hrossasótt? Hrossasótt (kolik) er samheiti yfir marga sjúkdóma sem leiða til sársauka í kviðarholi hestsins. Því getur sjúkdómstilstand í meltingarvegi, þvagfærum, lifur o. fl. leitt til svokallaðrar hrossasóttar. Í flestum tilfellum er þó að ræða vandamál í meltingarvegi.

Sársauki í meltingarvegi getur orsakast af ýmsum ástæðum og getur verið erfitt að greina meinið, líka fyrir reyndan dýralækni. Ástæðurnar geta til dæmis verið heiftarleg ormasýking, uppsöfnun af mat í þörmum, snúningur á þörmum, bakteríusýkingar, svo einhver dæmi séu nefnd.

Helstu einkenni hrossasóttar geta verið óróleiki, hesturinn fer að krafsa, kíkir á magann, hendir sér niður, svitnar og er greinilegt að honum líður illa. Mikilvægt er að greina hvort hrossið sé með væg einkenni af hrossasótt eða ekki. Dýralæknirinn einn sker úr um það og metur ástand hrossins með því að athuga blóðrás, þarmahreyfingar og framkvæmir endaþarmsskoðun. Mikilvægt er fyrir hrossaeigendur að vita að hrossasótt getur leitt til dauða. Tíminn getur verið naumur og nauðsynlegt er að fá dýralækni sem allra fyrst á staðinn.



Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir