WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

 
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

7.5.2007 09:32

Væntumþykja

Hvernig væri að við færum að reka áróður fyrir meiri mannlegri hlýju í garð hestanna okkar? Það er orðið sjaldséð sjón að sjá hestamenn knúsa og kjassa hestana sína, einhvernveginn eins og það sé ekki í tísku að þykja vænt um reiðhestinn.

Skiljanlega tengist atvinnumaður í reiðmennsku hestum sem þeir ríða á annan hátt en hinn almenni hestamaður, þar sem hver hestur dvelur yfirleitt tímabundið hjá viðkomandi. Atvinnumenn eru oftar en ekki fyrirmynd okkar hinna og getur verið að skýringa sé einmitt að leita þarna. Við sjáum ekki fyrirmyndirnar knúsa og kjassa hestana og því þykir það ekki "töff", allavega ekki þegar aðrir sjá til.

Ég vil hvetja fólk til að vera ófeimið við að sýna hestunum sínum hlýju, hvað er yndislegra en þegar hestur leitar í hógværð undir handarkrikann og biður um strokur, kjass og klapp? Hann mun örugglega launa það í góðum spretti, þar sem hann lítur á eigandann sem vin og foringja.

Allir ættu að skoða tamningaspóluna hans Benna Laxdal, hún eykur skilning manna á sálarlífi hesta. Að lokum vil ég minna á að hestarnir eiga sér aðeins talsmann í okkur og því eigum við ekki að hika við að láta í okkur heyra ef við verðum vör við illa meðferð þeirra.

Sigurborg Daðadóttir, dýralæknir



Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir