2.2.2012 15:54 Smáauglýsing Reiðtygjamarkaður á Sörlastöðum á laugardaginn
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur - stendur einhvers staðar. Á laugardaginn kemur, þann 4. febrúar verður reiðtygja- og fylgihluta markaður á Sörlastöðum, Kolaportsstemning með Sörlakaffinu frá kl. 09:00-15:00. Það verður morgunbrauð, hádegissúpa, kleinur og kaka á boðstólum hjá Stefaníu.
Lesa meira... |
1.2.2012 23:15 Frá Æskulýðsnefnd Óskum eftir bingóvinningum Æskulýðsnefndin stendur fyrir árlegu bingói þann 28. febrúar næstkomandi. Eins og ávallt stefnir nefndin að því að bjóða upp á góða og glæsilega vinninga enda vel sóttur og vinsæll atburður í vetrardagskránni. Til að svo megi verða leitum við til Sörlafélaga sem eru aflögufærir eða reka fyrirtæki sem geta lagt fram gjafir sem nota má í bingóvinninga.
Lesa meira... |
1.2.2012 14:11 Frá Stjórn Vetrardagskrá Sörla Í janúarmánuði var spurt hér á vefsíðunni um hvernig fólki litist á ný útgefna vetrardagská Sörla. Af þeim sem svöruðu spurningunni leist 60% vel á hana, 27% ágætlega og 2% sæmilega. Það vakti hins vegar athygli að 12% merktu við möguleikann – hvaða vetrardagskrá? Lesa meira... |
31.1.2012 08:58 Frá Æskulýðsnefnd Smali 2012 - úrslit og myndir
Smalinn 2012 var haldinn á laugardaginn var. Þrátt fyrir risjótt veður, vatnselg og krap var ágæt þátttaka og knapar á öllum aldri skemmtu sér vel við að ríða þrautabrautina sem Kristján Jónsson hannaði. Talsvert var um skemmtileg tilþrif í keppninni og úrslit urðu eftirfarandi. Lesa meira... |
27.1.2012 09:10 Frá stjórn Hestadagar í Reykjavík 2012
Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars – 1. apríl næstkomandi. Lesa meira... |
27.1.2012 09:08 Frá Æskulýðsnefnd Smali - Opið mót hjá Sörla - síðasti skáningardagur er í dag! CocaCola mótaröðin
 Nú er komið að hinni árlegu smalakeppni æskulýðsnefndarinnar og að þessu sinni höfum við fengið Coke í lið með okkur og þeir ætla að bjóða upp á drykki og verðlaun. Mótið er opið öllum og kostar ekkert að keppa. Við höfum fengið Kristján Jónsson til að koma og hjálpa okkur við uppsetningu á brautinni. Lesa meira... |
23.1.2012 20:28 Frá Sörlakaffi Sörlakaffi opnar á laugardaginn kemur
Sörlakaffi opnar á ný næsta laugardag, þann 28. janúar kl. 09.00. Til að byrja með verður Sörlakaffi opið til kl. 15.00 nema önnur dagskrá sé á vegum félagsins á Sörlastöðum.
Lesa meira... |
18.1.2012 08:43 Frá Fræðslunefnd Tilkynning frá Fræðslunefnd Járningarnámskeið frestast um viku vegna óviðráðanlegra orsaka, kynningarfundur og fræðsluerindi verður 26. janúar kl. 19.30 á Sörlastöðum. Lesa meira... |
17.1.2012 14:31 Af Hestafréttum Myndband af Frumtamninganámskeiði Fræðslunefndar
Fræðslunefndin stóð fyrir frumtamninganámskeiði á Sörlastöðum um nýliðna helgi. Ingimar Sveinsson, oftast kennur við Hvanneyri, kenndi þar aðferð sína “Af frjálsum vilja” sem byggist á skilningi á skynjun, viðbrögðum og hegðun hestsins og því að læra að þekkja og notfæra sér ýmis merki sem hesturinn gefur tamningamanninum. Jafnframt að kenna hestinum á máli sem hann skilur. Hér má sjá myndband frá námskeiðinu. Lesa meira... |
16.1.2012 16:55 Smáauglýsing Kerrupróf Er með námskeið fyrir fólk sem vantar réttindi til að aka með kerru þyngri en 750 kg. Lesa meira... |
12.1.2012 11:49 Frá Æskulýðsnefnd Æskulýðsnefndin er komin á Facebook Æskulýðsnefndin er búin að stofna hópsíðu á Facebook. Hópurinn er lokaður hópur og því þarf að sækja um aðgang, sem verður að sjálfsögðu veittur öllum Sörlafélögum. Lesa meira... |
11.1.2012 18:13 Frá Sörlastöðum Reiðhöll - opnunartímar í janúar
Nú eru námskeið hafin og höllin upptekin vegna þeirra flesta daga vikunnar. Búið að uppfæra reiðhallartímana út janúar mánuð. Stundatöfluna má skoða undir hnappnum Sörlastaðir - Opnunartímar. Stefnt verður að því að uppfæra þessar upplýsingar jafnóðum og þær breytast. Lesa meira... |
9.1.2012 08:41 Frá Krýsuvíkurnefnd Brúnn hestur enn í óskilum!
Þegar smalað var um byrjun desember kom í ljós að einhver hafði tekið rangan brúnan hest úr högum Krýsuvíkur í haust. Hesturinn sem var tekinn í misgripum er örviljugur og getur verið hættulegur ókunnugum. Hann er örmerktur og eru fjórar öftustu tölurnar í merkinu 3185. Hesturinn sem varð eftir í haganum líkist þeim fyrrnefnda mikið en er ekki örmerktur og því ekki hægt að rekja hann til eiganda. Lesa meira... |
5.1.2012 13:44 Frá Fræðslunefnd Fræðslukvöldaröð Sörla / Sýnikennslur
Fræðslunefnd Sörla býður uppá fræðslukvöldaröð í vetur. Við höfum fengið til liðs við okkur úrvals knapa og reiðkennara til að svara nokkrum spurningum sem margir hestamenn eru að velta fyrir sér. Reiðkennararnir munu með sýnikennslum sýna okkur hvernig þeir vinna í sínum hestum. Lesa meira... |
3.1.2012 14:05 Frá Fræðslunefnd Reiðnámskeið veturinn 2012
Nú eru upplýsingar um reiðnámskeið á vegum Fræðslunefndar komnar á vefinn. Smellið á hnappinn Reiðnámskeið 2012 sem er hér til hægri á síðunni til að kynna ykkur framboðið í vetur. Tekið er á móti skráningum á netfangið fraedslunefnd@sorli.is Lesa meira... |
30.12.2011 10:35 Frá Ferðanefnd Gamlársdagsreiðtúrinn
Gamlársdagsreiðtúrinn verður samkvæmt hefð á gamlársdag kl. 13.30 en þá hittast Sörlafélagar í fyrstu samreið vetrarins, kveðja árið sem er að líða og búa sig undir að fagna nýju og góðu ári í hestamennskunni.
Lesa meira... |
29.12.2011 20:26 Frá stjórn Eyjólfur Þorsteinsson var kjörinn Íþróttakarl Hafnarfjarðar í kvöld
Rétt í þessu var Eyjólfur Þorsteinsson kjörinn Íþróttamaður Hafnarfjarðar á glæsilegri Íþrótta- og viðurkenningarhátíð bæjarins sem fram fór í Íþróttahúsinu Strandgötu. Á hátíðinni tók Magnús formaður við styrkjum til félagsins fyrir frábæran árangur íþróttamanna Sörla á árinu sem og framlag vegna íþróttastarfs 16 ára og yngri.
Lesa meira... |
29.12.2011 11:00 Frá Æskulýðsnefnd Jólaball Sörla verður haldið í dag!
 Árlegt jólaball Sörla verður haldið í dag fimmtudaginn 29. desember frá 18:00 til 20:00. Jólsveinninn mætir á svæðið með stútfullan poka af góðgæti handa góðu börnunum. Siggi Hlö mætir með tónlistina! Við hvetjum alla til að mæta og eiga notalega jólastund saman, ungir sem aldnir. Lesa meira... |
28.12.2011 10:06 Frá stjórn Vetrardagskráin 2012 og fréttabréf eru komin á vefinn Nú er búið að setja vetrardagskrána og desember fréttabréfið sem allir ættu að hafa fengið í pósti fyrir jólin, á vefinn. Vetrardagskráin er undir hnappnum Dagskrá hér til vinstri á síðunni og fréttabréfin er hægt að skoða, nokkur ár aftur í tímann, undir hnappnum Félagið og þar undir hnappnum Fréttabréf. Lesa meira... |
23.12.2011 12:09 Frá stjórn Vetrardagskrá og fréttabréf Kæru félagar, Nú er á leiðinni til ykkar í pósti bæði dagskrá komandi árs og fréttabréf. Dagskráin er glæsileg og margir viðburðir eru í boði hjá okkur í Sörla. Nefndir félagsins ásamt stjórn hafa unnið vel að undirbúningi og metnaðarfullt starf sést í glæsilegri dagskrá. Fréttabréf og dagskrá félagsins verður einnig hægt að nálgast á vef félagsins.
Lesa meira... |
21.12.2011 09:04 Frá Fræðslunefnd Frumtamninganámskeið með Ingimari Sveinssyni
Helgina 13-15 janúar mun Ingimar Sveinsson oftast kenndur við Hvanneyri halda frumtamningarnámskeið á Sörlastöðum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist frumtamningu hrossa með aðferðinni "Af frjálsum vilja". Aðferðin byggist á skilningi á skynjun, viðbrögðum og hegðun hestsins og því að læra að þekkja og notfæra sér ýmis merki sem hesturinn gefur tamningamanninum.
Lesa meira... |
14.12.2011 14:16 Frá LH Jólaleikur Landsmóts
Ó já, jólastemningin fer að ná hámarki hér á skrifstofu Landsmóts og hér eru mandarínur og piparkökur í öll mál. Við viljum endilega hvetja ykkur til að taka þátt í jólaleiknum okkar og freista gæfunnar um leið og miði á LM 2012 er keyptur á forsöluverði. Lesa meira... |
13.12.2011 14:39 Frá Fræðslunefnd Kvöldkaffi með Brynjari Vilmundarssyni
Fræðslunefnd Sörla hefur fengið Brynjar sem oft er kenndur við Fet í Rangárvallasýslu til að koma og spjalla yfir kaffi um hrossarækt sína og skoðanir hans á hrossarækt á Íslandi. Fundurinn verður á fimmtudaginn 15.desember. kl. 19.30 á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Lesa meira... |
13.12.2011 13:50 Aðsent efni Skötuhlaðborð á Þorláksamessu hjá Íshestum
Góðan daginn Sörli! Þar sem við fréttum að Sörli verður ekki með skötuhlaðborð þetta árið þá fannst okkur ómögulegt að enginn skata yrði á boðstólnum í Sörlaskeiði! Íshestar verða því með Þorláksmessuskötu í hádeginu 23.des. Lesa meira... |
13.12.2011 09:28 Smáauglýsing Óska eftir plássi fyrir 3 hesta Óska eftir plássi fyrir 2 til 3 hesta í vetur. Get takið að mér tamningu eða þjálfun, gjafir, járningu eða annað vinnuframlag ef um semst. Nánanari upplýsingar í síma 897 6705. Lesa meira... |
7.12.2011 22:41 Frá Krýsuvíkurnefnd Brúnn hestur tekinn í misgripum í Krýsuvík í haust
Þegar smalað var um síðustu helgi kom í ljós að einhver hefur tekið rangan brúnan hest úr högum Krýsuvíkur í haust. Hesturinn sem var tekinn í misgripum er örviljugur og getur verið hættulegur ókunnugum. Hann er örmerktur og eru fjórar öftustu tölurnar í merkinu 3185. Hesturinn sem varð eftir í haganum líkist þeim fyrrnefnda mikið en er ekki örmerktur og því ekki hægt að rekja hann til eiganda.
Lesa meira... |
7.12.2011 16:17 Smáauglýsing Tólf hesta hús til leigu í vetur Er með til leigu mjög gott nýlegt 12 hesta hús á besta stað í nýja hverfinu í Sörla. Leigist fram á næsta sumar. Tilboð óskast. Nánari upplýsingar í síma 896 2102. Lesa meira... |
7.12.2011 10:15 Frá Sörlastaðanefnd Skötu- og saltfiskveisla frestað um ár vegna framkvæmda Sörlastaðanefnd hefur ákveðið að vegna framkvæmda við nýtt eldhús á Sörlastöðum verði hinni árlegu skötu- og saltfiskveislu frestað um ár. Aðstæður við framkvæmdirnar eru á því stigi eins og er að ekki er forsvaranlegt að leggja húsið undir veisluhöld - en leggur drög að glæsilegri veislu 2012. Lesa meira... |
5.12.2011 10:48 Aðsent efni Ráðstefna um dómaramál Þriðjudaginn 6. desember verður haldin opin ráðstefna um dómaramál. Ráðstefnan verður haldin í félagsheimili Fáks og hefst kl. 19:00 – 22:00 Fjölbreitt framsöguerindi en flutningsmenn verða í þessari röð: Lesa meira... |
2.12.2011 09:28 Smáauglýsing Ullmax - ullar undirföt til sölu Kæru Hestamenn. Nú þegar frostið er komið, þá er um að gera klæða sig vel. Ég er að selja hágæða ullar undirföt sem hentar vel við kuldanum, sértaklega í hestamennskunni. Þetta er tilvalin jólagjöf handa útivistarfólki. Lesa meira... |
23.11.2011 09:38 Frá Krýsuvíkurnefnd Hagabeitarlokun í Krýsuvík 2011
Hagabeitin lokar formlega þetta árið laugardaginn 10. desember. Völva Krýsuvíkur hefur lofað góðu veðri. Við ætlum að byrja að smala klukkan ellefu og fólk vinsamlegast mæti tímanlega. Þá höfum við fyrirvaran á því birtan endist ekki lengi þennan dag.
Lesa meira... |
21.11.2011 09:59 Aðsent efni 1001 Þjóðleið Jónas Kristjánsson hefur áratugum saman skrásett þjóðleiðir á Íslandi og birtist afraksturinn í einstakri bók sem nú býðst félagsmönnum í hestamannafélögum á sérstöku kynningartilboði. Lesa meira... |
8.11.2011 14:52 Frá Æskulýðsnefnd Skráning á námskeið í knapamerkjakerfinu
Nú er hafin skráning í knapamerkin hjá okkur í vetur. Við byrjum á kennslu í bóklega hlutanum núna í nóvember og verður fyrsta kennslustundin þann 21. nóvember. Kennt verður tvisvar í viku en nánari tímasetningar verða gefnar út í lok þessarar viku. Verkleg kennsla hefst svo í byrjun janúar. Lesa meira... |
28.10.2011 14:30 Frá stjórn Miklar breytingar í stjórn og mörgum nefnda Sörla
67. aðalfundur Sörla var haldinn í gærkvöldi og var vel sóttur en ríflega 70 manns komu og tóku þátt í aðalfundastörfum. Miklar breytingar urðu á stjórn félagsins en 4 nýjir félagar tóku þar sæti. Einnig urðu talsverðar breytingar í mörgum nefndum félagsins. Nýr formaður Sörla er Magnús Sigurjónsson. Fundargerð verður birt um leið og hún berst ásamt nánari fréttum af fundinum. Hér má sjá nokkrar svipmyndir frá aðalfundi. Lesa meira... |
27.10.2011 16:18 Frá stjórn Aðalfundur Sörla er í kvöld! 67. Aðalfundur Sörla verður haldinn fimmtudaginn 27. október kl. 20.00 á Sörlastöðum. Sörlafélagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum. Lesa meira... |
25.10.2011 13:09 Smáauglýsing Morgungjafir Tek að mér morgungjafir á Sörlasvæðinu í vetur. Nánari upplýsingar í síma 891 9596. Lesa meira... |
24.10.2011 11:10 Frá stjórn Kraftaverk á einni helgi Sörlastaðir búnir að fá fyrri kvistinn
Það var harðsnúinn hópur félagsmanna sem mættu til starfa á föstudaginn, búnir hinum ýmsu verkfærum. Þeir gengu glaðbeittir til verksins og slóu ekki af enda í gær sunnudag, var fyrri kvisturinn kominn á þakið og búið að loka að utan. Lesa meira... |
20.10.2011 15:08 Frá stjórn Framkvæmdir við Sörlastaði hefjast í dag! Nú verður ekki lengur frestað vegna veðurs. Framkvæmdirnar hefjast við Sörlastaði í dag föstudaginn 21. október. Við stefnum á að byrja að vinna á bilinu kl. 16.00-17.00 og halda áfram alla helgina. Lesa meira... |
18.10.2011 15:11 Smáauglýsing Hesthúspláss í Hafnarfirði Óska eftir að leigja hesthúspláss fyrir 3-4 hesta í Hafnarfirði. Öruggum greiðslum lofað. Upplýsingar í síma 824 9911 Kristín eða 8417971 Birna. Lesa meira... |
18.10.2011 10:12 Aðsent efni Hestakerru stolið í Hafnarfirði
Hestakerru var stolið þar sem hún stóð á Helluhrauni helgina 6. til 9. október og ekki hefur spurst til hennar síðan. Kerran er 4 hesta, þýsk, grá að lit með segl toppi og hefur skráningarnúmerið EE071. Lesa meira... |
14.10.2011 15:54 Frá stjórn Framkvæmdum við Sörlastaði - enn frestað Veðurguðirnir eru ekki sérlega vilhollir okkur Sörlamönnum þessa dagana. Verðurspain fyrir helgina er slæm svo ekki verður farið í að rjúfa þak Sörlastaða að sinni og framkvæmdum því enn frestað um viku. Menn eru þó beðnir um að stilla sig inn á næstu helgi, dagana 21.-23. október. Nýjar fréttir af skipulagi verða birtar hér á vefnum. Lesa meira... |
13.10.2011 16:09 Frá Ferðanefnd Langar þig að vera í Ferðanefnd?
Mikil endurnýjun verður í Ferðanefnd Sörla á komandi starfsári. Ferðanefnd stendur fyrir félagsreiðtúrum yfir vetrartímann sá fyrsti á gamlársdag. Hún stendur fyrir grill-, Helgafells- og Krýsuvíkurtúra að vori og skipuleggur og undirbýr fimm daga sumarferð í júní. Mjög mikilvægt er að í nefndina veljist fólk með áhuga á hestaferðalögum og góðum félagsskap. Lesa meira... |
13.10.2011 16:00 Smáauglýsing Pláss til leigu Til leigu nokkur hestpláss í góðu húsi við Sörlaskeið. Nánari upplýsingar í símum 893 1752 eða 895 1155. Lesa meira... |
6.10.2011 15:23 Frá stjórn Framkvæmdir við Sörlastaði - FRESTAÐ UM VIKU!
Framkvæmdirnar sem áttu að hefjast í dag verður frestað um viku vegna mjög óhagstæðrar veðurspár til að rjúfa þakið á reiðskemmunni. Menn eru þó beðnir um að stilla sig inn á næstu helgi, dagana 14.-16. október. Áhugasmir endilega hafið samband og skráið ykkur í vinnuteymið. Lesa meira... |
5.10.2011 15:34 MINNINGAR – Þriðju tónleikarnir Sörlafélaginn Þuríður Sigurðardóttir fer á kostum
Þuríður Sigurðardóttir hefur svo sannarlega slegið í gegn, hjá gömlum og nýjum aðdáendum á tvennum tónleikum í Salnum í vor og haust, enda aldrei betri að margara mati! Hún heillaði tónleikagesti með söng sínum og gamansemi, þegar hún rifjaði upp 45 ára feril í fjölbreyttu lagavali og sögum. Nú, vegna fjölda áskorana, hefur verið ákveðið að efna til þriðju tónleikanna. Lesa meira... |
3.10.2011 11:58 Frá Stjórn Sörli kynntur á Flensborgardeginum
Föstudaginn 30. september s.l. var Flensborgardagurinn haldinn hátíðlegur. Þann dag hlýddu nemendur skólans á fyrirlestra og kynningar íþróttafélaganna í bænum. Magnús Sigurjónsson fór fyrir hönd Sörla og kynnti félagið okkar fyrir ungmennum í Flensborg og var vel tekið. Lesa meira... |
12.9.2011 09:49 Aðsent efni Daníel Ingi gerði það gott á Tommamótinu
Tommamótinu sem er haldið til minningar um Tómas Ragnarsson hestamann lauk nú um helgina. Daníel Ingi Smárason skeiðaði undir íslandsmeti á Blæng frá Árbæjarhjáleigu í 250 metrunum. Önnur "íslandsmet" á árinu hafa ekki verið staðfest svo sótt verður um þetta met sem önnur met. Tíminn var 22.02 sek. Lesa meira... |
2.9.2011 16:37 Frá stjórn Framkvæmdir við Sörlastaði hefjast í fyrramálið
Nú er komið að því - framkvæmdir við stækkun félagsaðstöðunnar á Sörlastöðum munu hefjast á morgun laugardaginn 3. sept kl. 9:00. Hafist verður handa við að tæma geymsluna, inn af salnum, flokka og henda drasli. Stefnt verður að því að setja upp vinnupalla og undirbúa rif á þakinu. Lesa meira... |
31.8.2011 10:51 Frá mótanefnd Mistök í útreikningum Þau leiðu mistök urðu á Gæðingaveislu Sörla að einkunn Kristínar Ingólfsdóttur og Krumma frá Kyjuholti var reiknuð vitlaust, Kristín og Krummi höfnuðu í fjórða sæti í B- flokki áhugamanna en áttu að vera í þriðja sæti. Er Kristín beðin velvirðingar á þessu. Lesa meira... |
30.8.2011 10:20 Frá LH Landsmótsnefnd á faraldsfæti Á stjórnarfundi í Landssambandi hestamannafélaga þann 12. ágúst síðast liðinn, var ákveðið að landsmótsnefnd sú er stofnuð var haustdögum 2010, færi út í hestamannafélögin í landinu til að kynna skýrslu sína, niðurstöður og umfjöllunarefni og svara fyrirspurnum fundarmanna. Nefndin, sem fjallaði um landsmótin í nútíð og framtíð, mun hefja fundaherferðina á Akureyri föstudaginn 2. september n.k. Lesa meira... |
29.8.2011 15:49 Frá Stjórn Sörla Stækkun félagsaðstöðunnar á Sörlastöðum
Eins og flestir vita hefur það verið lengi á stefnuskrá að stækka félagsaðstöðuna okkar á Sörlastöðum. Búið er að teikna, spekúlega og spá en nú er kominn tími framkvæmda. Um næstu helgi 1.-4. september stefnum við á að rjúfa þakið og hefja vinnu við kvistina. Okkur vantar sjálfboðaliða til að taka þátt í þessu verki með okkur, ekki síst fólk með reynslu af svona framkvæmdum. Lesa meira... |
29.8.2011 08:51 Frá LH Landsmótsnefnd á faraldsfæti Á stjórnarfundi í Landssambandi hestamannafélaga þann 12. ágúst síðast liðinn, var ákveðið að landsmótsnefnd sú er stofnuð var haustdögum 2010, færi út í hestamannafélögin í landinu til að kynna skýrslu sína, niðurstöður og umfjöllunarefni og svara fyrirspurnum fundarmanna. Lesa meira... |
Eldri fréttir eftir mánuðum |