WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

 
 


 

2.2.2012 17:51
Frá Ferðanefnd
Fyrsti félagsreiðtúr ársins á laugardaginn
Félagsreiðtúr ferðanefndar verður fainn kl. 14:00 þann 4. febrúar næst komandi. Safnast verður saman við suðurgafl Sörlastaða og riðinn hóflegur hringur við hæfi lítt þjálfaðra hesta.

Lesa meira..

2.2.2012 15:54
Smáauglýsing
Reiðtygjamarkaður á Sörlastöðum á laugardaginn
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur - stendur einhvers staðar. Á laugardaginn kemur, þann 4. febrúar verður reiðtygja- og fylgihluta markaður  á Sörlastöðum, Kolaportsstemning með Sörlakaffinu frá kl. 09:00-15:00. Það verður morgunbrauð, hádegissúpa, kleinur og kaka á boðstólum hjá Stefaníu. 
Lesa meira..

1.2.2012 23:15
Frá Æskulýðsnefnd
Óskum eftir bingóvinningum
Æskulýðsnefndin stendur fyrir árlegu bingói þann 28. febrúar næstkomandi. Eins og ávallt stefnir nefndin að því að bjóða upp á góða og glæsilega vinninga enda vel sóttur og vinsæll atburður í vetrardagskránni. Til að svo megi verða leitum við til Sörlafélaga sem eru aflögufærir eða reka fyrirtæki sem geta lagt fram gjafir sem nota má í bingóvinninga.
Lesa meira..

1.2.2012 16:21
Frá Sörlastöðum
Opnunartímar í reiðhöll 30. janúar-5. febrúar
Reiðhöllin verður upptekin vegna reiðnámskeiða og Reiðmannsins (LBHÍ) frá fimmtudeginum 2.- sunnudagsins 5. febrúar sem hér segir.
Lesa meira..

1.2.2012 14:11
Frá Stjórn
Vetrardagskrá Sörla
Í janúarmánuði var spurt hér á vefsíðunni um hvernig fólki litist á ný útgefna vetrardagská Sörla. Af þeim sem svöruðu spurningunni leist 60% vel á hana, 27% ágætlega og 2% sæmilega. Það vakti hins vegar athygli að 12% merktu við möguleikann – hvaða vetrardagskrá?
Lesa meira..

1.2.2012 13:11
Fundargerðir stjórnar
Fjórði stjórnarfundur Sörla - fundargerð
Fjórði stjórnarfundur Sörla var haldinn á Sörlastöðum 17. janúar síðast liðinn.  Hér birtist fundargerð.
Lesa meira..

31.1.2012 08:58
Frá Æskulýðsnefnd
Smali 2012 - úrslit og myndir
Smalinn 2012 var haldinn á laugardaginn var. Þrátt fyrir risjótt veður, vatnselg og krap var ágæt þátttaka og knapar á öllum aldri skemmtu sér vel við að ríða þrautabrautina sem Kristján Jónsson hannaði. Talsvert var um skemmtileg tilþrif í keppninni og úrslit urðu eftirfarandi.
Lesa meira..

31.1.2012 08:51
Frá Æskulýðsnefnd
Æskan og hesturinn - Viltu vera með?
Óskum eftir þátttöku krakka á öllum aldri til að taka þátt í Æskan og hesturinn, sem haldin verður þann 1. apríl n.k.
Lesa meira..

27.1.2012 09:10
Frá stjórn
Hestadagar í Reykjavík 2012
Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars – 1. apríl næstkomandi.
Lesa meira..

27.1.2012 09:08
Frá Æskulýðsnefnd
Smali - Opið mót hjá Sörla - síðasti skáningardagur er í dag!
CocaCola mótaröðin
Nú er komið að hinni árlegu smalakeppni æskulýðsnefndarinnar og að þessu sinni höfum við fengið Coke í lið með okkur og þeir ætla að bjóða upp á drykki og verðlaun. Mótið er opið öllum og kostar ekkert að keppa. Við höfum fengið Kristján Jónsson til að koma og hjálpa okkur við uppsetningu á brautinni.

Lesa meira..

26.1.2012 12:33
Smáauglýsing
Til leigu stía í Hlíðarþúfum
Til leigu tveggja hesta stía í Hlíðarþúfum. Nánari upplýsingar í síma 821 4958.
Lesa meira..

25.1.2012 09:41
Frá Fræðslunefnd
Fræðsluerindi um járningar á fimmtudag
Fræðsluerindi um járningar verður haldið á morgun, fimmtudagskvöldið 26. janúar,
á Sörlastöðum kl 19:30.

Lesa meira..