WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

 
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

27.1.2012 09:10
Frá stjórn
Hestadagar í Reykjavík 2012

Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars – 1. apríl næstkomandi.


Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum í Ölfushöll.

Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 31. mars og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum. Í ráðhúsi Reykjavíkur verður eitthvað hestatengt í boði allan daginn, söngur, fræðsla og gaman. Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: „Ístölt – þeir allra sterkustu“.


Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni. Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 1.apríl. Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum.

Endanleg dagskrá og nánari upplýsingar um Hestadaga í Reykjavík verður birt á næstu dögum inni á http://www.icelandichorsefestival.is/



Viðburður sem engin áhugamaður um íslenska hestinn ætti að missa af!



Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir