|
19.1.2012 09:35
Frá Skemmtinefnd Þorrablót Sörla - Nú eru síðustu forvöð að panta miða!
Nú er þorrinn að ganga í garð og líður senn að hinu víðfræga þorrablóti Sörla. Blótið verður haldið laugardaginn 21. janúar næstkomandi að Sörlastöðum.
• Hið sívinsæla bögglauppboð sem Páll Ólafsson stýrir af alkunnri snilld veður að sjálfsögðu á sínum stað í dagskránni. • Veislustjóri verður hinn fjallhessi Erlingur Sigurðsson. • Guðbrandur Einarsson mun svo halda uppi fjörinu fram á rauða. • Miðasalan er á Sörlastöðum hjá Magnúsi kl. 09.00-18.00 og hefst fimmtudaginn 12. janúar og stendur til fimmtudagsins 19. janúar. Hægt er að panta miða í síma 565 2919 - miðar verða að vera sóttir í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 20. janúar. Miðaverð er kr. 4.500,-. Fyrstir koma fyrstir fá! Skemmtinefndin Til baka |






