|
28.8.2010 18:39
ÍM 2010 Glæsilegu Íslandsmóti er lokið á Sörlavöllum
Veðrið lék við keppendur og áhorfendur á lokadegi Íslandsmóts. Fjöldi áhorfandi var í brekku og stúku og fylgdist með frábærum íþróttasýningum okkar bestu knapa en A-úrslitum var sjónvarpað beint á RÚV. Veður og aðstæður á mótsvæði voru hinar bestu alla mótsdagana.
Við minnum á uppskeruhátíð Íslandsmóts sem hefst kl. 22.30 á Sörlastöðum. Allir velkomnir - frítt inn. Hljómsveitin Milanó heldur uppi fjöri. Til baka |






