WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

Augl hægri 1

Augl hægri 2

     
 

Krísuvík

Augl hægri 4

 

Augl hægri 5

Augl hægri 6

9.3.2010 09:15
Frá stjórn
5. fundur stjórnar - Fundargerð

Hér birtist fundargerð frá 5. stjórnarfundi Sörla sem handinn var þriðjudaginn 16. febrúar s.l.


Stjórn Hestamannafélagsins Sörla

5. fundur.

Þriðjudaginn 16. febrúar kom stjórn Hestamannafélagsins Sörla saman til fundar á Sörlastöðum. kl.17.00 Björn Bjarnason setti fundinn og stjórnaði honum. Magnús Sigurjónsson ritaði fundargerð. Páll Ólafsson boðaði forföll. Mæting samkvæmt undirskriftum.

Fundgerðir Fundagerðir 3. og 4. fundar samþykktar

Bikarmót Framkvæmd fyrsta mótsins gekk vel. Enginn af okkar keppendum komst í úrslit. Góður stuðningshópur mætti og hvatti Sörlafólkið til dáða

Innheimta félagsgjalda Hilmar greindi frá að innheimta félagsgjalda gangi nokkuð vel, bréf var sent til skuldara þar sem þeim er boðið gera upp skuld sína ellegar teknir af félagskrá. Áhersla lögð á að félagar í forsvari nefnda og ráða séu skuldlausir,Hilmar greindi frá stöðunni nú eftir að bréfin voru send ú. Í byrjun mars verða send út félagsgjöld fyrir 2010

Erindi frá Eggerti Hjartarsyni Eggert sendi skýrslu um öryggismál sem þarf að fara yfir á Sörlasvæðinu, stjórnin þakkar Eggerti fyrir skýrsluna. Birni falið að svara Eggerti.

Landsmót 2012 Stjórnin ræðir um þær viðræður sem er í gangi milli Hestamannafélagsins Fáks og LH um landsmót í Reykjavík 2012, Björn sagði stjórn frá formannafundi þar sem þetta var aðalumræðuefnið. Stjórn Sörla ákvað að senda eftirfrandi ályktun á LH og hestamiðlana.

Ályktun frá stjórn Hestamannafélagsins Sörla varðandi landsmót í Reykjavík 2012. Á fundi þann 16. febrúar fjallaði stjórn Hestamannafélagsins Sörla um val stjórnar LH á landsmótsstað fyrir árið 2012.


Mjög skiptar skoðanir eru innan stjórnar Sörla og meðal félagsmanna um hvort halda eigi landsmót á höfuðborgarsvæðinu.

Val á landsmótsstað er í höndum stjórnar LH samkvæmt lögum samtakanna. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að Landsmót 2012 verði haldið á félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík.

Lög LH setja stjórn samtakanna ekki skorður um val á landsmótsstað. Engin tilmæli eða ályktanir í þá veru voru samþykktar á síðasta þingi LH sem haldið var á Kirkjubæjarklaustri árið 2008.

Stjórn Sörla leggur til að á næsta þingi LH sem haldið verður á Akureyri 2010 fari fram málefnaleg umræða um vald stjórnar LH og stjórnskipulag samtakanna sem og hugsanlegt regluverk varðandi val á staðsetningu landsmóta í framtíðinni. Landsþing LH er réttur vettvangur fyrir þessa umræðu.

Nú liggur ákvörðun fyrir varðandi árið 2012 og var hún tekin af til þess bærum aðila samkvæmt lögum samtakanna. Hestamannfélagið Sörli fagnar því að ákvörðun liggur fyrir og mun virða hana.

Það skal tekið fram að stjórn Sörla er ekki að álykta um hvort Reykjavík sé ákjósanlegur staður fyrir landsmót. Ákvörðun stjórnar LH liggur fyrir og hana ber að virða. Félagið hvetur því hestamannafélög og félagsmenn þeirra að sýna stillingu og sameinast um að Landsmót 2012 í Reykjavík verði gott mót og glæsilegt. Hestamannafélagið Sörli mun leggja sitt af mörkum til að svo megi verða.

Virðingarfyllst,
fyrir hönd Hestamannafélagsins Sörla,
Björn Bjarnason, formaður

Frístundabíllinn Frístundabíllinn ekur ekki á athafnasvæði Sörla. Haft var samband við Hópbíla sem hafa umsjón með verkefninu um að bílinn keyri að Sörlastöðum. Könnun gerð á vef félagsins, þar kom fram mikill vilji barna og unglinga í Sörla að nota bílinn. Formanni falið að tala við Elísabetu hjá ÍBH varðandi næsti skref

Framkvæmd við breikkun á reiðvegi og lýsingu á skógarhringnum. Verkið gengur vel og er samkvæmt áætlun.

Framhaldsaðalfundur Framhaldsaðalfundur verður haldinn 4. Mars, reikningar félagsins eru í vinnslu.

Næsti fundur Þriðjudaginn 2. mars klukkan 17:00

Fundi slitið 18:00

Björn Bjarnason
Margrét Friðriksdóttir
Hilmar Bryde
Magnús Sigurjónsson
Darri Gunnarsson
Sigurður Emil Ævarsson

 



Prenta Senda
Til baka

Eldri fréttir