|
18.2.2010 13:35
Frá Fræðslunefnd Sörla Áhugafólk um hrossarækt - ekki missa af þessu!
Þann 18. Febrúar n.k. mun Fræðslunefnd Sörla bjóða hinum landskunna hrossaræktanda Magnúsi Einarssyni bónda í Kjarnholtum I í Biskupstungum, að kynna þau markmið og þær áherslur sem hann hefur haft að leiðarljósi í sinni hrossarækt.
· Magnús hefur ræktað um 200 hross og þar af hafa 26 hlotið 1. verðlaun. · Það sem hefur einkennt hrossarækt Magnúsar er sá gífurlegi fjöldi stóðhesta sem hafa fengið notkun og er talið að það séu eitthvað um 5000 hross undan Kjarnholtahrossunum. Það gefur auga leið að sá fjöldi setur óneitanlega sitt mark á íslenska hrossastofninn. · Kynningin hefst kl.20:00 í Reiðhöll Sörla á Sörlastöðum. · Kaffiveitingar verða á staðnum. · Aðgangseyrir: 1000 kr. fyrir skuldlausa Sörlafélaga og 1500 kr. fyrir utanfélagsmenn. · Allir velkomnir Til baka |






