|
1.2.2011 11:01
Frá vefstjóra WorldFeng áskrift fyrir skuldlausa félagsmenn Sörla
Nú eiga skuldlausir félagsmenn Sörla kost á að endurnýja frían aðgang að Worldfeng. Áskrift félagsmanna vegna ársins 2010 rennur út þann 1. júlí.
Þegar upplýsingarnar eru komnar í hús tekur smá tíma að vinna úr þeim og ganga úr skugga um að umsækjandi hafi greitt félagsgjöld 2011. Þegar umsókn hefur verið yfirfarin fær umsækjandi sendan tölvupóst með staðfestingu um að aðgangur hafi verið virkjaður. Mjög áríðandi er að menn muni að senda netfang með umsókn þar sem öll vinnsla gagna er rafræn. Ekki er gert ráð fyrir nema einum aðgangi að WorldFeng á fjölskyldu félagsmanns. Vefstjóri Sörla Til baka |






